Heimsmarkmiðin

Konur í Beirút berskjaldaðar fyrir kynbundnu ofbeldi

Heimsljós
Ljósmynd frá Beirút
Ljósmynd frá Beirút UN Women

Að mati UN Women eru konur og stúlkur í Líbanon sérstaklega berskjaldaðar fyrir kynbundnu ofbeldi. Sprengingarnar í Beirút fyrir mánuði, COVID-19 og djúpstæð efnahagskreppa veikja stöðu kvenna og stúlkna. „Konur og stúlkur á vergangi og eða á flótta eru afar berskjaldaðar fyrir ofbeldi, neyðarskýli eru yfirfull, þær fá sjaldnast ró og næði og þær hafa takmarkað aðgengi að salernis- og hreinlætisaðstöðu auk þess sem skortur er á kynjaskiptingu á salernum og í sturtum sem ýtir undir óöryggi kvenna,“ segir í frétt UN Women.

Bent er á að fyrir hafi staðan verið alvarleg. Miklar efnahagsþrengingar og spillt stjórnarfar ógni stöðu líbönsku þjóðarinnar auk þess sem heilbrigðiskerfið sé undir miklu álagi vegna COVID-19 faraldursins. Síðast en ekki síst sé staða kvenna almennt slæm – en Líbanon mælist nr. 139 af 153 ríkjum í mælingu Alþjóðaefnahagsráðsins (WEF).

„Sprengingarnar í Beirút lögðu borgina í rúst og kölluðu hörmungar yfir landið. Yfir 200 hafa látist, rúmlega 5000 eru særðir og yfir 300 þúsund hafa misst heimili sín. COVID-19 smitum fjölgar ört en fimm dögum eftir sprengingarnar mældist hæsta hlutfall nýrra smita á einum degi frá upphafi faraldursins í Líbanon.“

Ljóð eftir GDNR er á baki FO-bolsins.

Að sögn UN Women er búist við að eftirköst sprenginganna ýti enn frekar undir efnahagslega neyð þjóðarinnar og þar með stöðu kvenna. „Ljóst er að heimilisofbeldi hefur aukist í Líbanon, líkt og víða um heim. Áætlað er að atvinnuþátttaka kvenna muni dragast saman um 14-19% og fátækar konur eru mun líklegri til að búa við fæðuóöryggi, atvinnuleysi, hafa síður aðgang að félagslegri vernd og eiga í aukinni hættu á að vera beittar ofbeldi,“ segir UN Women.

Í gær hófst hjá UN Women sala á „Fokk ofbeldi“ bolnum. Allur ágóði rennur til verkefna UN Women til upprætingar á ofbeldi gegn konum og stúlkum í Líbanon. Framan á bolnum er ljósmynd eftir Önnu Maggý sem sýnir FO á táknmáli, túlkað af Aldísi A. Hamilton. Aftan á er frumsamið ljóð eftir GDRN um baráttuna gegn kynbundnu ofbeldi.

Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×