Tónlist

Föstudagsplaylisti DJ Áka Pain

Hjalti Freyr Ragnarsson skrifar
DJ Áki Pain.
DJ Áki Pain.

Áki Pétursson eða DJ Áki Pain hefur þeytt skífum í rúman aldarfjórðung hið minnsta og er hvergi nærri hættur.

Föstudagslagalisti hans er danspartílisti sem hann uppfærir reglulega og má nálgast útgáfu hans sem er í stöðugri uppfærslu hér

Listinn er að sögn Áka blanda af dans, house og góðu grúvi.

Hann hefur alltaf nákvæmlega hundrað lög á listanum og þegar hann bætir við lögum tekur hann jafnmörg út á móti. „Sumir hafa reyndar kvartað yfir því að uppáhaldslagið þeirra sé farið,“ segir Áki.

„Fólk hefur í gegnum tíðina beðið mig um að setja saman playlista fyrir hin ýmsu tækifæri, hvort sem það er fyrir partý eða til að hlusta á við hlaupin eða í ræktinni, svo það er alltaf gott að geta bent á þennan lista.“

Hér að neðan má heyra núverandi hundrað lögin á lista Áka.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×