Innlent

Segir ensku pressuna bulla og vísar því á bug að starfsmaður Hótel Sögu hafi fengið greitt fyrir að hleypa stúlkunum inn

Jakob Bjarnar skrifar
Breska pressan heldur því fram að ensku landsliðsmennirnir hafi haft vitorðsmenn í hópi starfsmanna hótelsins, sem hafi þegið greiðslu fyrir að hleypa stúlkum inn til þeirra. Hótelstjórinn vísar því alfarið á bug.
Breska pressan heldur því fram að ensku landsliðsmennirnir hafi haft vitorðsmenn í hópi starfsmanna hótelsins, sem hafi þegið greiðslu fyrir að hleypa stúlkum inn til þeirra. Hótelstjórinn vísar því alfarið á bug. getty/mike egerton/stöð 2

Ingibjörg Ólafsdóttir hótelstjóri á Hótel Sögu segir ensku pressuna fara með staðlausa stafi í því að starfsmaður hótelsins hafi þegi greiðslu fyrir að hleypa íslenskum stúlkum inn til að hitta ensku landsliðsmennina Phil Foden og Mason Greenwood eftir landsleik Íslands og Englands.

Málið hefur tröllriðið fjölmiðlum en landsliðsmennirnir hafa verið sektaðir fyrir að hafa brotið sóttvarnarlög og þeim hefur verið vikið úr landsliðinu með skömm. Enskar fótboltabullur taka því ekki létt og hefur reiði þeirra meðal annars beinst að hinum íslensku stúlkum sem hafa mátt sæta opinberri smánun á samfélagsmiðlum í kjölfarið.

Enska landsliðið veit að þetta er rangt

Nýjasta nýtt er svo frétt sem The Sun birtir þar sem því er haldið fram að starfsmaður hótelsins hafi þegið greiðslu fyrir að hleypa stúlkunum á fund landsliðsmannanna. Hinn óþekkti hótelstarfsmaður sé þannig samsekur, vitorðsmaður í því að brjóta sóttvarnarlög. Daily Mail tekur málið upp en Ingibjörg segir þetta staðlausa stafi í samtali við Vísi; hún vísar þessu á bug. 

Spurð hvernig hún geti fullyrt það segir hún það einfaldlega svo vera að á Sögu eins og á öðrum hótelum séu einungis fáir starfsmenn eftir og þeir sem þar eru séu starfsmenn til fjölda ára. „Þannig er bara ekki okkar kúltúr. Annars vil ég sem minnst tjá mig um þetta mál,“ segir Ingibjörg.

„Þetta er ekki rétt. Ég segi ekki meira. En enska landsliðið veit að þetta er ekki rétt .“

Enska pressan hefur farið hamförum vegna málsins. The Sun heldur því fram að starfsmaður hótelsins hafi fengið greitt fyrir að koma stúlkunum inn á hótelið en hótelstjórinn segir það hins vegar vera hið mesta rugl.skjáskot

Ingibjörg segir þetta mikla æsifréttamennsku sem enska pressan býður uppá um málið. Hún segir að enskir blaðamenn hafi reynt að hafa samband, potast eins og hægt er, eins og Ingibjörg orðar það hún hefur ekki veitt þeim viðtal. Hún vonast til þess að æsifréttamennskan á Íslandi sé ekki eins mikil og á Bretlandseyjum. 

Virðir trúnað við sína gesti 

Þrátt fyrir allt þetta vill Ingibjörg þó ekki meina að þessu máli öllu hafi fylgt mikið álag.

„Nei, alls ekki. 

Þetta var dásamlegt að fá að hafa enska landsliðið hjá okkur. Öll samskipti gengu vel þó að þetta hafi endað svona.“

En, þú metur það þá svo að þetta sé ekki óþægilegt fyrir Hótelið eða komi ykkur illa?

„Nei, ég tel það ekki vera. Auðvitað er öll umfjöllun, ef hún er ósanngjörn, erfið. Og þá verður maður leiður yfir henni. En þegar maður veit hvað er rétt þá er maður tiltölulega rólegur yfir því.“

En hvernig komust stúlkurnar þá inn á hótelið?

„Það er trúnaðarmál, hvernig þær komust inn. Við höldum trúnað við gestina okkar, sama hverjir þeir eru. En þetta er algerlega út takti við okkar kúltúr, þetta sem verið er að halda fram,“ segir Ingibjörg Ólafsdóttir hótelstjóri á Hótel Sögu.


Tengdar fréttir

Greenwood og Foden greiða 250 þúsund krónur í sekt

Mason Greenwood og Phil Foden, leikmenn enska landsliðsins, hafa lítinn áhuga á að dvelja á Íslandi stundinni lengur og má reikna með því að innan klukkustundar hafi þeir greitt 250 þúsund króna sekt fyrir brot á sóttkví.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×