Skoðun

Opið bréf til Þórólfs

Bjarni Jónsson skrifar

Sæll Þórólfur.

Á síðasta upplýsingafundi um Covid varpaðir þú fram eftirfarandi spurningum: Hvað eigum við að sætta okkur við að margir sýkist, hvað margir leggist inn á spítala og hve margir deyja af völdu Covid?

Ég ætla nefna nokkur dæmi sem geta hjálpað þér við að komast að svarinu.

Allt að 29 mans deyja árlega úr inflúensu sem berst reglulega til landsins. Við gætum komið í veg fyrir þessi dauðsföll með því að loka landinu alveg. Afleiðingar þess væru svo skelfilegar að við teljum þessi dauðsföll ásættanleg.

Árlega deyja um 10-20 manns í umferðaslysum og um 150 slasast alvarlega eða örkumlast. Við gætum komið í veg fyrir þessi dauðsföll og örkuml með því að banna bílaumferð. Afleiðingar þess væru svo skelfilegar svo við teljum þessi dauðsföll ásættanleg.

Um 400 manns deyja árlega af völdum tóbaksreykinga. Við gætum komið í veg fyrir mörg þessara dauðsfalla með því að banna reykingar en kjósum að gera það ekki, teljum þessi dauðsföll ásættanleg.

Um 30% þeirra Íslendinga sem deyja fyrir aldur fram hafa leitað sér áfengismeðferðar hjá SÁÁ. Á heimsvísu er talið að 3 milljónir manna deyji árlega úr áfengisneyslu. Við gætum komið í veg fyrir mörg þessara dauðsfalla og skaðleg áhrif á aðstandendur og samfélag með því að banna áfengi. Við kjósum að gera það ekki og sætta okkur við skaðann.

Á hverju ári látast 0-5 sjómenn og 5-10 starfsmenn í mannvirkjagerð. Við gætum komið í veg fyrir þessi dauðsföll með því að banna sjósókn og nýbyggingar en kjósum að gera það ekki af augljósum ástæðum, teljum þessi dauðsföll ásættanleg.

Að loka landinu fyrir ferðamönnum eins og gert var 19 ágúst kemur hugsanlega í veg fyrir einhver Covid smit, jafnvel dauðsföll, en þú mátt líka, Þórólfur, hugsa um afleiðingarnar. Þúsundir missa vinnuna, allt að 10% vinnandi manna. Hundruðir missa fyrirtæki sín í gjaldþrot og tapa aleigunni. Heilsufarslegar, félagslegar og efnahagslegar afleiðingar munu hrjá allt þetta fólk, börn þeirra og fjölskyldur um langt skeið. Vonleysi, fátækt, þunglyndi, sjálfsmorð. Þessi áhrif eru rétt að byrja að verða sýnileg.

Höfundur er eigandi Nordic Store og fyrrverandi dósent.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×