Rafíþróttir

Bein útsending: Fyrsta umferðin í úrvalsdeild KSÍ í efótbolta

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Leikmenn að spila FIFA20 leikinn.
Leikmenn að spila FIFA20 leikinn. Getty/Lukas Schulze

Knattspyrnusamband Ísland hefur stofnað úrvalsdeildina í efótbolta í samstarfi við Rafíþróttasamtök Íslands og fyrsta umferðin er í kvöld og verða tveir leikir í beinni á Stöð2 esport, Vísi og twitch rás KSÍ.

Deildina skipa átta bestu lið landsins og var byggt á árangri leikmanna á Íslandsmótinu í vor, þar sem fimmtíu lið skráðu sig til leiks.

Keppendur spila með sín FIFA Ultimate team lið og í kvöld hefst fyrsta umferð mótsins sem mun vera í beinni útsendingu á hverju miðvikudagskvöldi fram í desember

Leikmenn deildarinnar spila allir fyrir íþróttalið og er eitt af markmiðum deildarinnar að kynna rafíþróttir fyrir almenning og vera með deild sem iðkendur vilja stefna á að spila í.

Spilaðar verða fjórtán umferðir á þrettán vikum í úrvalsdeildinni. Þegar FIFA21 kemur út skiptir úrvalsdeildin beint í nýjan leik, en fyrstu umferðirnar verða í FIFA20.

Leikirnir fjórir í kvöld eru eftirtaldir:

Guðmundur Tómas Sigfússon frá ÍBV mætir Róberti Daða Sigurþórssyni frá Fylki

Aron Þormar Lárusson frá Fylki mætir Alexander Aron Hannessyni frá Keflavík

Tindur Örvar Örvarsson frá Fylki mætir Jóhanni Ólafi Jóhannssyni frá LFG

Leifur Sævarsson frá LFG mætir Bjarka Má Sigurðssyni frá Víkingi

Leikirnir í beinni verða leikur Leifs og Bjarka annars vegar og leikur Arons Þormars og Alexanders Arons hins vegar.

Hér fyrir neðan má sjá beina útsendingu frá fyrstu umferðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×