Samstarf

Ís­lendingar hvattir til dáða í nýju mynd­bandi

Íslenskt - láttu það ganga
Í myndbandi fyrir kynningarátakið Íslenskt - láttu það ganga er spilað og sungið stórskemmtilegt lag.
Í myndbandi fyrir kynningarátakið Íslenskt - láttu það ganga er spilað og sungið stórskemmtilegt lag.

Trésmiðir, úrsmiðir, tónlistarfólk, kaupa tómata, gúrkur, osta og mjólk er meðal þess sem er sungið í nýju myndbandi þar sem Íslendingar eru hvattir til dáða inn í haustið.

Myndbandið er frumsýnt hér á Vísi en það markar upphaf annars fasa sameiginlegs kynningarátaks stjórnvalda og atvinnulífs. Átakið kallast Íslenskt - láttu það ganga og er í því lögð áhersla á að verja störf og auka verðmætasköpun á Íslandi. Fyrri fasi átaksins hófst síðastliðið vor. 

Landverðir, bændur og búalið, vilja bæði fá tónlist og leikrit á svið, segir einnig í laginu en markmiðið með átakinu er að efla vitund landsmanna um neysluhegðun og útskýra þau keðjuverkandi áhrif sem verða þegar við veljum innlenda þjónustu og skiptum við innlend fyrirtæki.

Hér fyrir neðan er rætt við Andrés Magnússon, framkvæmdastjóra Samtaka verslunar og þjónustu, og myndbandið sýnt.

Klippa: Íslenskt - láttu það ganga

Á vefnum gjoridsvovel.is er hægt að nálgast upplýsingar um átakið. Þar kemur meðal annars fram að íslensk fyrirtæki hafi til mikils að vinna, sérstaklega um þessar mundir. 

Ef nógu margir kjósi að eiga viðskipti innanlands geti það haft þýðingarmikil áhrif á efnahagskerfið, tryggt lífskjör, varið störf og eflt atvinnustarfsemi. Þess vegna sé mikilvægt að við tökum okkur saman og að sem flest fyrirtæki taki þátt í átakinu. Þannig náum við mestum árangri.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×