Golf

Guðrún Brá upp um heil 46 sæti á heimslistanum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðrún Brá Björgvinsdóttir vann Íslandsmeistaratitilnn í höggleik þriðja árið í röð á dögunum.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir vann Íslandsmeistaratitilnn í höggleik þriðja árið í röð á dögunum. Mynd/GSÍmyndir/SETH

Keiliskonan Guðrún Brá Björgvinsdóttir hoppar upp um 46 sæti nýjum á heimslista atvinnukylfinga í kvennaflokki sem var uppfærður í byrjun vikunnar.

Guðrún Brá endaði í fjórtánda sæti á LET Access mótaröðinni um síðastliðna helgi. Mótaröðin er sú næst sterkasta hjá atvinnukonum í Evrópu. Guðrún Brá er í sæti númer 875 á heimslistanum í þessari viku. Besti árangur hennar frá upphafi er sæti númer 790.

Guðrún Brá varð Íslandsmeistari í golfi þriðja árið í röð í síðasta mánuði og fylgdi því nú eftir með góðum árangri á Flumserberg Ladies Open mótinu í Sviss.

Guðrún Brá tryggði sér keppnisrétt á Evrópumótaröðinni á lokaúrtökumóti LET sem fram fór á La Manga golfsvæðinu á Spáni í byrjun ársins. Kóróunveiran sá til þess að hún hefur lítið keppt til þessa en hún er að bæta úr því þessar vikurnar.

Þrír íslenskir kylfingar eru á heimslista atvinnukylfinga í kvennaflokki.

Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni er í 569. sæti á þessum lista þrátt fyrir að hún hafi ekkert keppt að undanförnu vegna meiðsla. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR er síðan í sæti númer 846.

Valdís Þóra fellur niður um fjögur sæti og Ólafía Þórunn fór niður um fimm sæti að þessu sinni.

Meiðslin hafa svo sannarlega sett sitt strik í reikninginn hjá Valdísi Þóru sem var í 535 sæti í mars.

Ólafía Þórunn var komin niður í 915. sæti á listanum sem kom út 24. ágúst en hafði hækkað sig um 74 sæti á listanum sem var gefinn út í lok ágúst. Hún tók þetta stökk eftir að hafa náð tuttugasta sætinu á opna tékkneska meistaramótinu

Guðrún Brá var í 921. sæti á listanum sem var gefinn út 31. ágúst en nálgast nú Ólafíu Þórunni verulega. Nú munar á þeim 29 sætum.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir eru báðar á meðal keppenda á atvinnumóti sem fram fer á Golfpark Holzhausern í Sviss og hófst í dag.

Jin Young Ko frá Suður-Kóreu er efst á heimslistanum og í öðru sæti er síðan hin bandaríska Danielle Kang.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×