Viðskipti innlent

Ys og þys á fast­eigna­markaði í júlí

Atli Ísleifsson skrifar
Minna framboð og aukin eftirspurn eftir eignum hefur stytt meðalsölutíma eigna og fer hann ört lækkandi.
Minna framboð og aukin eftirspurn eftir eignum hefur stytt meðalsölutíma eigna og fer hann ört lækkandi. Vísir/vilhelm

Fasteignaviðskipti virðast enn vera í miklum uppgangi en fjöldi þinglýstra kaupsamninga hafa ekki verið fleiri það sem af er ári en í júlí síðastliðnum.

Þetta kemur fram í septemberskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um húsnæðismarkaðinn. Þar segir að sömu sögu sé að segja um skammtímavísi HMS – það er fjöldi íbúða sem teknar eru úr sölu – þar sem má sjá mikla aukningu þriðja mánuðinn í röð.

Sé litið til seinustu þriggja mánaða hafa 24 prósent fleiri íbúðir verið teknar úr sölu miðað við sama tímabil á síðasta ári. Þar sé mesta aukningin meðal nýrra íbúða en þar hafi fjöldinn milli ára dregist saman um 56 prósent.

„Minna framboð og aukin eftirspurn eftir eignum hefur stytt meðalsölutíma eigna og fer hann ört lækkandi. Á höfuðborgarsvæðinu í júlí tók að jafnaði 43 daga að selja fjölbýli og 50 daga að selja sérbýli sem er í báðum tilfellum lægra en hefur mælst frá upphafi mælinga í byrjun árs 2013.

HMS

Tólf mánaða hækkunartaktur íbúðaverðs jókst þó nokkuð milli mánaða samkvæmt vísitölu paraðra viðskipta en í júlí mældist hann 7,4% á höfuðborgarsvæðinu, 4,4% í nágrannasveitarfélögum þess og 9,1% annars staðar á landinu. Með pöruðum viðskiptum er átt við muninn á kaupverði fasteignar þegar hún er seld öðru sinni,“ segir í tilkynningu.

Metmánuður á metmánuð ofan

Þá segir ennfremur í skýslunni að ekkert lát sé á vexti bankanna til heimila.

„Frá því í apríl á þessu ári hafa hver metin verið slegin á fætur öðru í útlánum til einstaklinga. Sömu þróun er að sjá og undanfarna mánuði þar sem nánast öll ný útlán eru óverðtryggð með breytilegum vöxtum. Aldrei hafa fleiri slík lán verið gefin út og í júlí síðastliðnum, þar sem hrein ný óverðtryggð lán hjá bönkunum á breytilegum vöxtum námu rúmlega 45 milljörðum króna,“ segir í tilkynningunni.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×