Atvinnulíf

Fyrstu skrefin í atvinnuleysi

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Um þessar mundir eru margir að takast á við óvænt atvinnuleysi.
Um þessar mundir eru margir að takast á við óvænt atvinnuleysi. Vísir/Getty

Um þessar mundir eru margir að takast á við óvænt atvinnuleysi. Í þeirri stöðu er mikilvægt að hver og einn hugi að sínum fyrstu skrefum. Því hvað tekur nú við og hvað er best að gera? 

Hér eru níu góð ráð sem geta nýst vel sem fyrstu skref.

1. Nýttu tengslanetið

Ef það er einhvern tíma réttur tími til að fara yfir tengslanetið sem þú hefur byggt upp á síðustu árum þá er það núna. Listaðu upp nöfn aðila sem þú þekkir og hafðu samband. Símtal, að kíkja á viðkomandi í kaffi, hittast í hádegismat. Skipuleggðu einhvern snertiflöt þar sem þú segir viðkomandi frá því að þú sért í atvinnuleit og hvað þú sæir helst fyrir þér.

2. Dragðu úr neyslu

Að draga úr neyslu til að skera niður kostnað er mikilvægt fyrir margra hluta sakir. Fyrir atvinnuleitina þína skiptir til dæmis máli að þú reynir eins og hægt er að búa þér í haginn þannig að þú ráðir við atvinnuleit í dálítinn tíma. Ef peningaáhyggjurnar verða of miklar munu þær áhyggjur hafa áhrif á það hvernig þú berð þig að í atvinnuleit, viðtölum og fleira.

3. Sorgarstigin eru fimm

Það er ákveðið áfall að upplifa óvænt atvinnuleysi og oft um það rætt að fólk fari í gegnum sorgarstigin fimm í kjölfar atvinnumissis. Kynntu þér þessi sorgarstig því það er á fimmta og síðasta stiginu sem við erum í rauninni í stakk búin til að takast á við næstu kafla í lífinu.

Hér má lesa um sorgarstigin fimm:

Uppsagnir framundan: Af hverju ég?

Til að virkja þig í atvinnuleit er síðan gott að búa sér til verkefnalista fyrir hvern dag og viku. Haka við þau verkefni sem þú klárar eins og góða ferilskrá, fá meðmæli, uppfæra prófílinn á LinkedIn og fleira. Allt eru þetta skref sem færa þig nær næsta starfi.

4. Skjalfestu árangur

Góður undirbúningur fyrir atvinnuviðtöl, gerð ferilskrár og fleira er að fara yfir verkefni sem þú leystir eða náðir góðum árangri í hjá síðasta vinnuveitanda og skjalfesta þau. Hér skiptir þó miklu máli að skjalfesta þau verkefni sem eru nýliðin. 

Þetta minnisblað mun hjálpa þér þegar þú skoðar atvinnuauglýsingar eða heyrir um auglýst störf.

Kórónufaraldurinn hefur lamað atvinnulífið um allan heim.Vísir/Getty

5. Skoðaðu ásýndina þína

Í atvinnuleit þurfum við að vera meðvituð um okkar eigin ásýnd. Þess vegna er gott að fara yfir það hvernig ásýndin þín er, til dæmis á Facebook. Er sú ásýnd jákvæð, neikvæð, upplýsandi? Hvernig mun þessi ásýnd virka á vinnuveitanda sem flettir þér upp til skoðunar fyrir atvinnuviðtal eða ráðningu?

Þá skiptir orðsporið þitt máli og eins hvernig þú ræðir um ástandið eða fyrri vinnuveitanda. Í litlu samfélagi þarf oft ekki mikið til að fólk heyri af því hvernig þú hefur staðið þig, hvernig þú talar eða hvað þú segir um aðra o.s.frv. Fæstir vilja til dæmis ráða starfsmann sem sagður er tala mjög illa um sinn fyrri vinnuveitanda eða yfirmann.

6. Lyfturæðan þín

Ef þú fengir tvær til þrjár mínútur til að segja frá sjálfum þér, hvað myndir þú þá segja? Prófaðu að fara með þessa kynningarræðu upphátt því í atvinnuleit þarf lyfturæðan að vera tilbúin. Prófaðu jafnvel að taka þessa lyfturæðu upp á símann þinn, hlustaðu og veltu fyrir þér hvernig frammistaðan var, hvort einhverju megi sleppa, bæta við eða breyta.

7. Láttu vita af þér

Í atvinnuleit þar sem mikið atvinnuleysi ríkir þýðir ekkert að sitja heima og bíða eftir símtali. Atvinnuleitin er þín nýja vinna. Láttu vita af þér og láttu fólk í kringum þig vita að þú ert virk/ur í atvinnuleit og opin/n fyrir nýjum hugmyndum.

Láttu stoltið ekki trufla þig í þessari vegferð því það mun ekki hjálpa þér að fá nýtt starf.

8. Rafræn tengslamyndun

Í vinnunni höfum við byggt upp tengslanet í gegnum tíðina með því að hitta fólk. Hvort heldur sem það voru viðskiptavinir eða samstarfsfélagar þá gerist þetta smátt og smátt að tengslanetið okkar stækkar.

Nú er þetta farið en í staðinn fyrir að sitja heima og stækka tengslanetið þitt ekki neitt er um að gera að yfirfæra þessa tengslamyndun yfir á rafrænt form. Sendu vinabeiðnir á Facebook ef það á við. Skrifaðu ummæli fyrir neðan stöðufærslur hjá fólki ef það á við. Taktu þátt í ókeypis fundum sem eru í boði hjá hagsmunaaðilum, þótt þeir séu á rafrænu formi. Fólk tekur eftir því fólki sem tekur þátt.

9. Finndu eldmóðinn

Auðvitað getur vonleysi gripið um sig í kjölfar atvinnumissis, ekki síst nú þar sem óvissutímarnir framundan eru miklir. Ein leiðin sem getur hjálpað er að finna sér afþreyingu sem veitir innblástur. Í staðinn fyrir að horfa bara á einhverja þætti í sjónvarpinu er til dæmis hægt að leita beinlínis að efni sem gefur þér hugmyndir. Sjálfsævisögur, podcöst eða að gúggla einhverjar greinar er dæmi um eitthvað sem væri hægt að gera.

Mundu að sá aðili sem mun hjálpa þér mest í gegnum atvinnuleysið ert þú sjálf/ur.


Tengdar fréttir

Á sextugsaldri í atvinnuleit: Þrjú góð ráð

Fólk á sextugsaldri í atvinnuleit þarf að gæta þess að ferilskráin þeirra sé ekki lengri en ein til tvær A4 síður þótt starfsreynslan sé mikil. Þá er um að gera að nýta sér samfélagsmiðlana eins og unga fólkið gerir.

Atvinnuleit í kreppu: Fimm góð ráð

Það má gera ráð fyrir því að margir verði í virkri atvinnuleit með haustinu þegar hlutabótaúrræði stjórnvalda lýkur og fjöldi fólks bætist við á hefðbundnar atvinnuleysisbætur.

Starfsframinn: Góð ráð fyrir atvinnuviðtalið

Inga Steinunn Arnardóttir ráðgjafi hjá Hagvangi fer hér yfir nokkur góð ráð fyrir fólk sem er að fara í atvinnuviðtal. Hún ráðleggur fólki að fara úr yfirhöfninni, þiggja vatnsglasið, vera íhaldssamt í klæðnaði, jákvætt og vel undirbúið.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×