Íslenski boltinn

Dregið í undanúrslitin í beinni í Mjólkurbikarmörkunum í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Magdalena Anna Reimus og félagar hennar í Selfossliðinu hafa ekki tapað bikarleik í meira en tvö ár. Selfoss vann bikarinn fyrir ári síðan.
Magdalena Anna Reimus og félagar hennar í Selfossliðinu hafa ekki tapað bikarleik í meira en tvö ár. Selfoss vann bikarinn fyrir ári síðan. Vísir/Daníel Þór

Átta liða úrslit Mjólkurbikars karla klárast í dag með þremur athyglisverðum leikjum og þá verður ljóst hvaða átta lið eru komin í undanúrslit karla og kvenna í ár.

Drættirnir í undanúrslitin fara báðir fram í Mjólkurbikarmörkunum þegar leikjum Vals og HK annars vegar og Breiðablik og KR hins vegar er lokið. Leikirnir hefjast klukkan 19:15. Fyrsti leikur dagsins er leikur FH og Stjörnunnar í Kaplakrika en hann hefst klukkan 16.30. Eyjamenn hafa þegar tryggt sér sæti í undanúrslitum en þeir slógu út Fram.

Allir leikirnir verða í beinni á sportstöðvunum. Leikur FH og Stjörnunnar er á Stöð 2 Sport, leikur Breiðabliks og KR er á Stöð 2 Sport og leikur Vals og HK er á Stöð 2 Sport 3.

Mjólkurbikarmörkin fara síðan í loftiðklukkan 21.30 á Stöð 2 Sport en í honum verður einmitt dregið í undanúrslitin.

Í Mjólkurbikar kvenna verða í pottinum Selfoss, Breiðablik, KR og Þór/KA í pottinum.

Mótanefnd KSÍ telur nauðsynlegt að leika undanúrslitin í Mjólkurbikarnum í ár á hlutlausum völlum þar sem eru flóðljós.

Posted by KSÍ - Knattspyrnusamband Íslands on Mánudagur, 7. september 2020

Undanúrslitaleikirnir fara fram með sérstökum hætti í ár því á á fundi stjórnar KSÍ þann 3. september síðastliðinn var tekin ákvörðun um að breyta undanúrslitaleikjunum vegna þeirra áhrifa sem heimsfaraldurinn hefur haft á íslenska knattspyrnutímabilið.

Mótanefnd KSÍ taldi nauðsynlegt að leika undanúrslitin í ár á hlutlausum völlum þar sem eru flóðljós og hefur verið fundað með fulltrúum ÍTF um málið. Að öðrum kosti getur þurft að leika um hádegisbil á virkum degi.

Mótanefndin lagði til að samþykkt yrði bráðabirgðaákvæði í reglugerð sem heimilar þessa breytingu. Tillagan var samþykkt og vísaði stjórn KSÍ henni til laga- og leikreglnanefnd til úrvinnslu.

Heimaliðin sem koma upp úr pottinum í kvöld fá því ekki heimaleiki í undanúrslitum Mjólkurbikarsins í ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×