Bíó og sjónvarp

Nýju ljósi varpað á umdeilda Eurovision-ferð Hatara

Stefán Árni Pálsson skrifar
Klemens og Matthías stóðu í ströngu í Tel Aviv vorið 2019.
Klemens og Matthías stóðu í ströngu í Tel Aviv vorið 2019.

Hatrið í leikstjórn Önnu Hildar Hildibrandsdóttur verður frumsýnd á RIFF í Bíó Paradís föstudaginn 25. september.

Myndin fjallar um ferðalag hljómsveitarinnar um króka og kima Eurovision, Ísraelsríkis og Palestínu. Í myndinni er fylgst með togstreitunni og spurningunum sem vöknuðu á leiðinni og rætt við meðlimi sveitarinnar fyrir og eftir að tvö hundruð milljón manns sjá atriði þeirra í sjónvarpi.

Myndin gefur raunsæja innsýn í það hvernig Hatari tókst á við þetta gríðarstóra verkefni, sem oft gekk mjög nærri þeim, og sýnir hvernig ferðalagið breytti hugsanagangi þeirra og sýn á lífið.

Hatrið er frumraun Önnu Hildar Hildibrandsdóttur leikstjóra. Hún söðlaði nýverið um og sneri sér að kvikmyndagerð eftir að hafa starfað í tónlistarbransanum í um tvo áratugi m.a. sem framkvæmdastjóri ÚTÓN og Nordic Music Export.

Klippa: Hatrið - sýnishorn

Hatrið verður sýnd í flokknum Ísland í brennidepli og er meðal þeirra framsæknu og áhugaverðu kvikmynda sem þar er að finna. Það er RIFF mikill heiður að standa að frumsýningu þessarar myndar þar sem tvinnað er saman glysgjörnum heimi Eurovision við vandmeðfarnar pólitískar vangaveltur og spurningar um hlutverk listamannsins. Í framhaldinu verður myndin sýnd á fjölda kvikmyndahátíða víða um heim.

Myndin verður sýnd í Bíó Paradís föstudaginn 25. september kl.18:00 og einnig á netinu í gegnum www.riff.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×