Viðskipti innlent

Ráðinn trygginga­stærð­fræðingur VÍS

Atli Ísleifsson skrifar
Poul hefur meðal annars starfað sem tryggingastærðfræðingur hjá danska tryggingafélaginu Quodos.
Poul hefur meðal annars starfað sem tryggingastærðfræðingur hjá danska tryggingafélaginu Quodos. VÍS

Poul Christoffer Thomassen hefur verið ráðinn tryggingastærðfræðingur hjá Vátryggingafélagi Íslands (VÍS). 

Í tilkynningu frá VÍS segir að hjá VÍS muni hann meðal annars koma að rekstri vátrygginga, afkomu þeirra og bera ábyrgð útreikningi vátryggingaskuldar. 

„Þá mun hann starfa náið með áhættustýringu til þess ganga úr skugga um að áhættustýrikerfi félagsins sé skilvirkt, sér í lagi varðandi útreikning áhættu vegna gjaldþolskrafna og vegna eigin áhættu- og gjaldþolsmats.

Poul, sem er frá Færeyjum, hefur fjölbreytta reynslu sem tryggingastærðfræðingur. Meðal annars var hann tryggingastærðfræðingur hjá danska tryggingafélaginu Quodos, leiddi tryggingafræðilegt ráðgjafarteymi hjá Deloitte í Danmörku og var framkvæmdastjóri áhættustýringar hjá TF Holding.

Poul er með Cand. Act gráðu í tryggingastærðfræði frá Kaupmannahafnarháskóla (Københavns Universitet) ásamt framhaldsmenntun í viðskiptafræði (HD1) frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn (Copenhagen Business School). Hann er jafnframt með CERA-vottun sem er alþjóðleg vottun í áhættustýringu fyrir tryggingastærðfræðinga.

Hann hefur nú þegar hafið störf.“





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×