Golf

John Daly með krabbamein og ætlar að taka upp heilsusamlegri lífsstíl

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Þegar mest lét reykti John Daly 40 sígarettur á dag.
Þegar mest lét reykti John Daly 40 sígarettur á dag. getty/Rey Del Rio

John Daly, sem vann tvö risamót í golfi á sínum tíma, er með krabbamein í þvagblöðru. Hann gekkst undir aðgerð sem heppnaðist vel en segir yfirgnæfandi líkur á að krabbameinið komi aftur.

Hinn 54 ára Daly verður seint sakaður um að hafa lifað heilsusamlegu líferni í gegnum tíðina. Hann reykti 40 sígarettur og drakk 28 dósir af Diet Coke á dag. Þá er hann alkahólisti.

Eftir að hafa leitað til læknis vegna nýrnasteina og bakverkja greindist Daly með krabbamein. Hann ætlar að breyta um lifnaðarhætti og vonast eftir kraftaverki.

„Ég ætla að drekka miklu minna af Diet Coke og reyna að hætta að reykja. Læknarnir segja að það sé ekki of seint í rassinn gripið. Því miður er þetta krabbamein sem kemur aftur,“ sagði Daly.

Hann segist ekki hræðast dauðann og ætlar að halda áfram að njóta lífsins og spila golf.

„Ég er enn að vinna, lifa lífinu og gera það sem ég þarf að gera. Ég tekst á við þessa áskorun. Ég er ekki smeykur. Ég vil bara að börnin mín hafi það gott sem og allir í fjölskyldunni,“ sagði Daly.

Hann vann PGA-meistaramótið 1991 og Opna breska meistaramótið fjórum árum síðar. Þá hefur Daly unnið fimm mót á PGA-mótaröðinni á ferlinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×