Innlent

Segir ekki við kerfið að sakast í máli egypsku fjölskyldunnar

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra. Vísir/Vilhelm

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segir að athugun hafi leitt í ljós að ekki væri við kerfið að sakast í máli egypskrar fjölskyldu sem vísa á úr landi á morgun. Þá hafi ekki verið bent á einstök atriði í kerfinu sem þyrfti að breyta til þess að fjölskyldan fái hæli hér á landi. Fundað verður um mál fjölskyldunnar í allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis í dag.

Fjölskyldan, foreldrar og fjögur börn, hefur dvalið hér á landi í tvö ár og berst nú fyrir því að fá pólitískt hæli. Fjölskyldufaðirinn tók þátt í pólitísku starfi í Egyptalandi gegn ríkjandi stjórnvöldum. Foreldrarnir óttast að þeir verði handteknir við komuna til Egyptalands og börnin tekin af þeim. Þeim verður að óbreyttu vísað úr landi á morgun, miðvikudag.

Dómsmálaráðherra hefur sagt að ekki komi til greina að breyta reglugerðum um málsmeðferðartíma vegna máls fjölskyldunnar. Ráðherra sagði í útvarpsþættinum Bítinu á Bylgjunni í morgun að hún hefði heyrt af málinu í fjölmiðlum eins og aðrir í landinu. Hún hefði óskað eftir svörum við því af hverju fjölskyldan hefði dvalið jafnlengi á landinu og raun bar vitni.

„Sú könnun mín leiddi í ljós að það er ekki við kerfið að sakast í þessu einstaka máli.“

Málið hefur vakið hörð viðbrögð meðal almennings en mörgum þykir ómannúðlegt að vísa fjölskyldunni úr landi, einkum í ljósi þess að um ung börn er að ræða sem fest hafa rætur í íslensku samfélagi. Innt eftir því hvort hún skilji slík viðbrögð, að fólk vilji ekki hafa kerfið á þennan veg, sagði Áslaug Arna að hún skildi „að sjálfsögðu“ viðbrögðin.

Egypsku börnin sem á að senda úr landi á morgun.

„Við erum öll mannleg og finnum öll fyrir samúð með þessu fólki og skiljum af hverju það leitar hingað. Þess vegna erum við alltaf að hugsa hvernig við getum gert kerfið betra.“ Nauðsynlegt væri að stytta málsmeðferðartíma hjá börnum en einnig þyrfti að horfa á kerfið í heild. Þannig benti Áslaug Arna á að aldrei hefðu fleiri fengið vernd hér á landi og í fyrra, eða 500 manns á árinu.

Innt eftir því hvort hún gæti breytt stefnu málsins og ákveðið að leyfa fjölskyldunni að vera áfram á landinu svaraði ráðherra neitandi.

„Nei, ráðherra tekur ekki slíkar ákvarðanir og þá þarf að breyta almennum reglum og lögum. Það hefur ekki verið bent á einstök atriði í kerfinu sem þyrfti að breyta til þess að þessi fjölskylda myndi falla þar undir.“

Mál egypsku fjölskyldunnar verður til umfjöllunar á fundi allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis klukkan tíu í dag. Umræðan er að beiðni Guðmundar Andra Thorssonar, varaformanns nefndarinnar og þingmanns Samfylkingarinnar. Fulltrúar frá Útlendingastofnun og dómsmálaráðuneyti verða á fundinum, auk dómsmálaráðherra.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×