Skoðun

Listin að gera ekki neitt

Ágúst Ólafur Ágústsson skrifar

Nú eru um hálft ár síðan Covid-19 barst til landsins og hefur það gjörbreytt samfélaginu, ekki aðeins ferðaþjónustunni heldur einnig menningarstarfsemi. Stjórnvöld hafa ráðist í nokkrar aðgerðir gagnvart ferðaþjónustunni. Þar þarf þó meira til.

Hins vegar hefur mjög lítið verið gert fyrir menningu og listir á tímum Covid. Allt of lítið. Stjórnvöld fjölguðu listamannalaunum um 40% sem þau sögðu sjálf að þau gerðu eftir að undirritaður kom fram með þá hugmynd. Gott og vel. Annað sem ég hef talað mig hása um síðan veiran barst til landsins, er aukinn stuðningur við sjónvarps- og kvikmyndageirann.

Næsti Eyjafjallajökull, aftur

Síðastliðinn vetur líkti ég þessu tækifæri við Eyjafjallajökul og átti ég þar við að eftir síðasta hrun var það eldgosið í Eyjafjallajökli sem kom Íslandi á heimskort ferðamanna. Í þessu hruni getum við hins vegar ekki reitt okkur á eldgos. Núna skulum við reiða okkur á nýsköpun og listir. Ég hef því lagt til og geri það hér enn og aftur að við gerum kvikmyndaiðnaðinn að stóriðnaði hér á landi.

Býr til störf og peninga

Til að svo megi vera, verðum við að auka endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar og margfalda Kvikmyndasjóð. Með mikilli innspýtingu í þennan geira stóraukum við umsvif hér á landi en með slíkum umsvifum fást störf og skatttekjur, ekki hvað síst í þeim geirum sem núna þjást hvað mest og þá sérstaklega á landsbyggðinni.

Þessi verkefni krefjast margs konar þekkingar og nýtingar á hótelum ásamt flutningum, veitingarekstri, leiðsögn, tæknistörfum og auðvitað allrar listarinnar sem verður sköpuð. Þá eru ferðamenn framtíðarinnar búnir til vegna slíks myndefnis því fjölmargar rannsóknir sýna beint samband á milli ferða til Íslands og kvikmynda og sjónvarpsefnis sem hér er tekið upp.

Höfum misst af milljörðum

Nú þegar eru nýleg dæmi þar sem við höfum misst af milljarða króna verkefnum t.d. til Írlands vegna þess að þeir bjóða betur en við í þessum efnum. Það er óskiljanlegt að stjórnvöld hafi ekki viljað taka þessi skref strax í vor þegar við vorum ítrekað að kalla eftir þeim þá.

Samhliða þessu þurfa stjórnvöld að koma með veglegan aðgerðarpakka fyrir annað listafólk í landinu: tónlistarfólkið, sviðlistarfólkið, skemmtikraftana, myndlistarfólkið, rithöfundana o.s.frv. Þetta þarf að gerast núna. Í þessum mánuði.

Listin að gera ekki neitt má ekki vera lengur ríkjandi hjá stjórnvöldum.

Þarf að gerast núna

Listin og menningin er það sem gerir okkur að Íslendingum. Listafólk hefur staðið með okkur, nú á þessum erfiðum tímum, en líka alltaf áður. Nú skulum við standa með þeim, þegar á reynir. Það þýðir ekki að tala um að gera þetta í fjarlægðri og fallegri framtíð. Tíminn er núna. Verjum peningum til að búa til peninga, og búum til list um leið. Við eigum lista- og tæknifólk á heimsmælikvarða og það eigum við að nýta, sérstaklega við þessar aðstæður.

Höfundur er alþingismaður Samfylkingarinnar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×