Enski boltinn

Totten­ham að næla í leik­menn sem voru orðaðir við Man United

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Þessir tveir gætu verið á leið frá Real Madrid til Tottenham Hotspur.
Þessir tveir gætu verið á leið frá Real Madrid til Tottenham Hotspur. David S. Bustamante/Manuel Queimadelo

José Mourinho virðist vera í þann mund að næla í tvo leikmenn sem voru báðir orðaðir við hans fyrrum félag Manchester United. Gareth Bale og Sergio Reguilón eru báðir leikmenn Real Madrid í dag en gætu skipt út hvítri treyju Real fyrir hvíta treyju Tottenham Hotspur.

Orðrómar þess efnis að Manchester United væri að skoða Gareth Bale sem mögulega lausn ef Borussia Dortmund myndi ekki samþykkja tilboð þeirra í Jadon Sancho fóru á flug um helgina. Nú hafa bæði Sky Sports og BBC greint frá því að Bale hafi meiri áhuga á að snúa aftur á White Hart Lane og Tottenham sé að gera allt sem í valdi sínu stendur til að fá Walesverjann aftur „heim.“

Bale lék með Tottenham frá árunum 2007 til 2013 og var í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum félagsins. Þó spænsku meistararnir hafi tekið fyrir það að lána leikmanninn virðist sem það gæti verið möguleiki. Það er allavega deginum ljósara að Bale á enga framtíð fyrir sér hjá félaginu.

Vinstri bakvörðurinn Sergio Reguilón er einnig talinn vera á leið til Tottenham frá Real. Hinn 23 ára gamli Reguilón var á láni hjá Sevilla á síðustu leiktíð. Vann félagið Evrópudeildina og góð frammistaða hans gegn Manchester United í undanúrslitum vakti athygli Ole Gunnar Solskjær, þjálfara United.

Real er tilbúið að selja þennan unga bakvörð með því skilyrði að klásúla verði sett í samninginn Real geti keypt hann til baka fyrir ákveðna upphæð. Virðist sem forráðamenn Man Utd hafi ekki áhuga á að kaupa leikmanninn ef Real setur þetta sem skilyrði. Áhugi Tottenham er enn jafn mikill sama hvort Real fái forkaupsrétt á leikmanninum að ári eður ei. Því virðist sem Reguilón muni fylgja Bale til Lundúna.

Að lokum er Tottenham einnig orðað við framherjann Bas Dost sem lék með Eintracht Frankfurt á síðustu leiktíð. Þessi 31 árs gamli hollenski frmaherji væri hugsaður sem varaskeifa fyrir Harry Kane sem er í raun eini hreinræktaði framherji liðsins að svo stöddu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×