Bílar

Raf-Hummer með krabbatækni

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Ramminn fyrir raf-Hummer, í pallbílaútgáfu.
Ramminn fyrir raf-Hummer, í pallbílaútgáfu.

Nýr raf-Hummer sem kynntur verður í næsta mánuði er ætlað að keppa við Cybertruck frá Tesla. Bíllinn un koma með beygjum á öllum hjólum, hann getur því skriðið til hliðar eins og krabbi.

Beygjur á öllum hjólum eru ekki nýjar af nálinni. GMC, framleiðandi Hummer hefur líklegast séð fyrir eitthvað notagildi í torfæruakstri. Þetta gerir auðvitað ökumanni auðveldara fyrir að leggja í stæði, sem gæti komið sér vel. Raf-Hummer-inn er ekki lítill bíll.

Líklega hefur rafvæðing Hummer-sins eitthvað með þennan nýja möguleika að gera. Það er sennilega auðveldara að setja svona í rafbíla en hefðbundna jarefnaeldsneytisbíla. Beygjurnar að aftan virka líklegast líka í hina áttina, það er andstætt framdekkjunum, til að minnka beygjuradíus bílsins.

Bíllinn verður kynntur formlega í október, fyrstu afhendingar munu fara fram á haustmánuðum næsta árs. Nánari upplýsingar munu væntanlega verða gefnar út við kynningu bílsins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×