Erlent

Sagði að Covid myndi hverfa vegna „hjarðeðlis“

Samúel Karl Ólason skrifar
Donald Trump og George Stephanopoulos á sviði í gær.
Donald Trump og George Stephanopoulos á sviði í gær. AP/Evan Vucci

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, svaraði spurningum á sjónvörpuðum borgarafundi í gærkvöldi þar sem hann sagðist meðal annars ekki hafa gert lítið úr heimsfaraldri nýju kórónuveirunnar. Þess í stað hefði hann gert mikið úr faraldrinum. Hann gagnrýndi einnig grímunotkun og hélt því fram að Covid-19 myndi hverfa vegna „hjarðeðlis“.

Þar átti hann líklegast við „hjarðónæmi“ (herd immunity) en sagði „hjarðeðli“ (herd mentality) og endurtók það nokkrum sinnum.

Trump sagði að með eða án bóluefnis, þá myndi veiran hverfa, vegna hjarðeðlis. George Stephanopoulos, sem stýrði fundinum, sagði að það fæli einnig í sér mörg dauðsföll.

„Þú þróar, þó þróar hjarð…, eins og hjarðeðli. Þetta verður hjarðþróað og það mun gerast. Þetta mun allt gerast. En, með bóluefni, held ég að þetta muni hverfa mjög fljótt.“

Hjarðónæmi er það þegar nægilega margir hafa smitast af veiki og mynda þar með ónæmi, til að hamla útbreiðslu viðkomandi veiki. Því fleiri sem eru ónæmir, því erfiðara er fyrir veiki eins og Covid-19 að dreifa úr sér.

Trump þvertók einnig fyrir að hafa gert lítið úr faraldrinum, eins og hann sagði blaðamanninum Bob Woodward að hann hefði gert og hann hefur síðan viðurkennt að hafa gert. Þess í stað sagðist Trump hafa gert of mikið úr faraldrinum.

Um vika er síðan Trump viðurkenndi að hafa vísvitandi gert lítið úr faraldrinum þegar hann byrjaði að dreifa úr sér um Bandaríkin í vetur. Markmiðið hafi verið að valda ekki skelfingu. Í viðtali við Woodward sagði Trump þó að veiran væri hættuleg og skaðleg.

„Maður andar bara að sér loftinu og þannig smitast hún. Þannig að þessi er mjög snúin. Þessi er mjög vandmeðfarin. Hún er líka banvænni en jafnvel flensan. Þetta er banvænt dót,“ sagði Trump við Woodward í símtali 7. febrúar.

Um sama leyti sagði Trump hins vegar bandarísku þjóðinni að stjórnvöld hefðu fulla stjórn á faraldrinum, veiran ætti eftir að hverfa eins og dögg fyrir sólu og að hún væri hvort eð er engu hættulegri en árstíðarbundin inflúensa.

Á fundinum í gærkvöldi virtist Trump þó ekki vilja kannast við að hafa gert lítið úr faraldrinum, né það að hafa viðurkennt það áður.

„Sko, ég gerði ekki lítið úr honum. Í rauninni, á margan hátt, gerði ég mikið úr honum, þegar snýr að aðgerðum,“ sagði Trump. „Aðgerðir mínar voru mjög sterkar. Ég er ekki að reyna að vera óheiðarlegur. Ég vil að fólk verði ekki hrætt.“

Um 196 þúsund manns hafa dáið í Bandaríkjunum vegna Covid-19, fleiri en nokkurs staðar annars staðar.

Eins og svo oft áður fór forsetinn mjög svo frjálslega með staðreyndir.

Hér má sjá Daniel Dale, fréttamann CNN, hlaupa yfir það sem Trump sagði ósatt á fundinum í gær. Dale hefur fylgt Trump náið eftir allt frá því hann tilkynnti framboð sitt og farið yfir ræður hans og yfirlýsingar.


Tengdar fréttir

Notuðu rússneska þotu í framboðsauglýsingu

Nefnd sem sér um að safna fjármunum fyrir forsetaframboð Donald Trump forseta Bandaríkjanna hefur fjarlægt auglýsingu þar sem hvatt var til stuðnings við bandaríska hermenn.

Gróðureldar orðnir að pólitísku bitbeini

Íbúar Kaliforníu, Oregon og Washington hafa orðið fyrir barðinu á sögulegu eldhafi en eldarnir hafa brunnið hraðar og meira en nokkru sinni áður. Eldarnir hafa þó orðið að pólitísku bitbeini milli Demókrata og Repúblikana.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×