Enski boltinn

Arteta: Aubameyang getur komist í hóp bestu leikmanna heims hjá Arsenal

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Pierre-Emerick Aubameyang með föður sínum á Emirates leikvanginum í gær eftir að gengið var frá nýjum samningi.
Pierre-Emerick Aubameyang með föður sínum á Emirates leikvanginum í gær eftir að gengið var frá nýjum samningi. Getty/Stuart MacFarlane

Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, var eins og aðrir Arsenal menn mjög ánægðir með það að Pierre-Emerick Aubameyang skrifaði undir nýjan samning við félagið í gær.

Pierre-Emerick Aubameyang gladdi stuðningsmenn Arsenal í gær með því að breyta út af venju stórstjarna liðsins síðustu ár og velja það að vera áfram hjá félaginu. Undanfarin ár hafa bestu leikmenn félagsins stokkið í burtu, hver á fætur öðrum. Gabonmaðurinn valdi það hins vegar að vera áfram.

Aubameyang skrifaði undir nýjan þriggja ára samning. „Það var aldrei neinn vafi á því að ég myndi skrifa undir nýjan samning við þetta félag,“ sagði Pierre-Emerick Aubameyang sem fagnaði samningnum með föður sínum á Emirates.

„Ég trúi á Arsenal. Við getum gert stóra hluti saman. Við erum með spennandi lið og ég trúi því að okkar bestu dagar eigi eftir að koma,“ sagði Aubameyang.

Pierre-Emerick Aubameyang kom til Arsenal í janúar 2018 og vann markakóngstitil ensku úrvalsdeildarinnar á sínu fyrsta tímabili 2018-19. Gamli samningurinn átti að renna út við lok þessa tímabils og hann hefði því mátt ræða við önnur félög í janúar.

Pierre-Emerick Aubameyang fékk fyrirliðabandið á síðasta tímabili og hefur þegar tekið við tveimur bikurum. Hann skoraði tvö mörk í sigri á Chelsea í bikarúrslitaleiknum og skoraði líka þegar liðið vann Liverpool í leiknum um Samfélagsskjöldinn.

„Það var mikilvægt fyrir okkur að Pierre-Emerick yrði áfram hjá okkur. Hann er frábær leikmaður með ótrúlegt hugarfar. Það segir okkur allt um hans getu að hann hafi verið sá sem var fljótastur að skora fimmtíu mörk fyrir þetta félag,“ sagði Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal.

„Hann er mikilvægur leiðtogi fyrir liðið og stór hluti af því sem við erum að byggja upp hér. Hann vill vera í hópi bestu leikmanna heims og setja sitt mark. Hann getur náð því hér,“ sagði Arteta.

Arsenal keypti Aubameyang á sínum tíma á 56 milljónir punda. Hann hefur síðan skorað 72 mörk í 111 leikjum þar af 55 mörk í 86 leikjum í ensku úrvalsdeildinni.

Aubameyang fékk fyrirliðabandið í nóvember eftir að Unai Emery tók það af Granit Xhaka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×