Innlent

Flugvélin til Amsterdam farin í loftið

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Kehdr-fjölskyldan.
Kehdr-fjölskyldan.

Magnús Norðdahl lögmaður Kehdr-fjölskyldunnar segir að til hafi staðið að sækja fjölskylduna á Ásbrú klukkan hálf sex í morgun og að hún færi með flugi Icelandair til Amsterdam. Sú flugvél fór í loftið um klukkan hálf átta í morgun. Magnús hefur ekki náð í fjölskylduna það sem af er morgni, slökkt sé á símum þeirra, og veit ekki hvort hún sé farin af landi brott.

„Að því marki sem mér eru kunnugar aðgerðir lögreglu þá stóð það til að fljúga gegnum Amsterdam,“ segir Magnús í samtali við fréttastofu í morgun.

Þá gagnrýnir hann ummæli sviðsstjóra Útlendingastofnunar í Kastljósi í gær og segir hann fara með rangt mál. Sviðsstjórinn hafi gert mikið úr því í viðtalinu að brottvísunin hafi verið fjölskyldunni sjálfri að kenna með vísan til þess að hún hafi ekki viljað endurnýja vegabréf.

„Höfum í huga að úrskurðurinn sem núna er verið að framkvæma var kveðinn upp 14. nóvember 2019 og birtur umbjóðendum mínum 18. nóvember. Þá hafa þau þrjátíu daga til að yfirgefa landið, það gerðu þau ekki. Þannig að þegar þessir þrjátíu dagar eru liðnir er kominn 18. desember. Frá þeim degi og til 28. janúar var fjölskyldan með gild ferðaskilríki,“ segir Magnús.

„Stjórnvöld hefðu getað flutt fjölskylduna úr landi á þeim tíma. Og það þarf að spyrja spurningarinnar af hverju það hafi ekki verið gert. Svo átti að flytja þau úr landi í febrúar. Af hverju að skipuleggja flutning úr landi þegar fyrir liggur að vegabréfin eru útrunnin? Af hverju ekki að gera það áður en það gerist? Þannig að það að kenna fjölskyldunni alfarið um þetta er í besta falli afbökun og í versta falli hrein lygi.“


Tengdar fréttir

Egypsku fjölskyldunni vísað úr landi í fyrramálið

Kærunefnd útlendingamála hefur hafnað beiðni Ibrahim Kehdr og fjölskyldu um frestun réttaráhrifa í máli þeirra og hyggst ekki taka fyrir kröfur fjölskyldunnar um endurupptöku málsins áður en það á að vísa þeim úr landi.

Hundruð mótmæla á Austurvelli

Nokkur hundruð manns eru saman komin á Austurvelli í miðbæ Reykjavíkur til að mótmæla brottvísun egypsku Kehdr-fjölskyldunnar sem fyrirhuguð er í fyrramálið. Fjölskyldan hefur sótt um hæli hér á landi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×