Innlent

Sunnlendingar hafa eignast sína eigin Sinfóníuhljómsveit

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Ný stofnuð Sinfóníuhljómsveit Suðurlands kom fram í fyrsta skipti í dag og spilaði þá á þrennum tónleikum fyrir grunnskólabörn í Árnessýslu.
Ný stofnuð Sinfóníuhljómsveit Suðurlands kom fram í fyrsta skipti í dag og spilaði þá á þrennum tónleikum fyrir grunnskólabörn í Árnessýslu. Magnús Hlynur Hreiðarsson.

Merk tímamót voru á Suðurlandi í dag en þá kom ný stofnuð Sinfóníuhljómsveit Suðurlands fram í fyrsta sinn opinberlega og spilaði á þrennum tónleikum. Tilgangur hljómsveitarinnar er meðal annars að auðga menningarlíf á Suðurland.

Börn úr Grunnskóla Þorlákshafnar steymtu í Þorlákskirkju í morgun þar sem fyrstu tónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar fóru fram. Síðan fór hljómsveitin og spilaði fyrir börn í Grunnskóla Hveragerðis og loks voru haldnir tónleikar í Aratungu fyrir börn úr uppsveitum Árnessýslu. Það þótti vel við hæfi að fyrsta lag hljómsveitarinnar væri James Bond lag.

Guðmundur Óli Gunnarsson er hljómsveitarstjóri sveitarinnar.Magnús Hlynur Hreiðarsson.

14 hljóðfæraleikarar eru í sveitinni, allt Sunnlendingar. Hljómsveitarstjórinn, Guðmundur Óli Gunnarsson býr á Selfossi en starfaði að uppbyggingu Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands frá stofnun hennar í 23 ár og byggir starfi nýju hljómsveitarinnar á þeirri reynslu sinni.

„Nú svo eru náttúrulega áform um að halda fleiri tónleik, margvíslega tónleika og smala saman þeim hæfileikum og mannauði, sem er hér til staðar á Suðurlandi á meðal tónlistarmanna og sjá hvernig okkur gengur að byggja upp reglulega starfsemi klassískrar hljómsveitar hér á svæðinu,“ segir Guðmundur Óli.

Krakkarnir fengu kynningu á einstökum hljóðfærum sveitarinnar, sem þeim fannst mjög gaman, ekki síst að heyra móturhjólahljóðin í básúnunni.

En er ekki krefjandi að stjórna svona Sinfóníuhljómsveit?

„Nei, iss, það geta allir gert þetta því þetta er bara eins og allt annað, ef þú kannt það þá er það ekki erfitt,“ segir Guðmundur Óli og hlær. Í lok tónleikanna spilaði hljómsveitin Á sprengisandi og skólakrakkarnir og kennararnir stóðu upp og sungu með.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×