Lífið

„Gigg sem ég væri til í á hverju kvöldi“

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Það er óhætt að segja að það verði gigg annað kvöld á Stöð 2. Tónlistarmaðurinn og veðurguðinn Ingó býður landsmönnum í partý með sínu uppáhaldsfólki.  
Það er óhætt að segja að það verði gigg annað kvöld á Stöð 2. Tónlistarmaðurinn og veðurguðinn Ingó býður landsmönnum í partý með sínu uppáhaldsfólki.   Lilja Jóns

Annað kvöld fer í loftið nýr þáttur á Stöð 2 í umsjón tónlistarmannsins Ingólfs Þórarinssonar sem er betur þekktur sem Ingó Veðurguð. Þátturinn ber nafnið Í kvöld er gigg, og býður Ingó landsmönnum í partý með öllu sínu uppáhalds tónlistarfólki.

Gestir fyrsta þáttarins eru engir aðrir en söngdívurnar Jóhanna Guðrún og Sverrir Bergmann og segist Ingó hafa vandað gestavalið vel.

Gestir fyrsta þáttarins á æfingu. Söngvararnir Jóhanna Guðrún og Sverrir Bergmann ásamt Davíði Sigurgeirssyni og Halldóri Gunnari Pálssyni. Vilhelm/Vísir

„Ég elska að sitja í partýi með skemmtilegu fólki og þegar það gerist þá langar mig alltaf til þess að hringja í uppáhalds tónlistarfólkið mitt og fá það með. Það má því eiginlega segja að þetta sé draumur að verða að veruleika hjá mér.“

Stemmning á fyrstu æfingu þáttarins, Í kvöld er gigg. Vilhelm Vísir

Þættirnir eru sex talsins og verða sýndir á Stöð 2 á föstudagskvöldum kl.18:55.

Ég hef mjög góða tilfinningu fyrir þáttunum því ég fann það um leið og við settumst niður í settinu og gerðum prufu hvað ég var afslappaður, ég fann allavega ekki fyrir neinu stressi. Þetta verður bara eins og að sitja í eftirpartýi með uppáhaldsfólkinu sínu.

„Þetta er eiginlega svona gigg sem ég væri til í á hverju kvöldi,“ segir Ingó og hlær.

Hugmyndina að þáttunum átti athafnamaðurinn Jón Gunnar Geirdal og eru þættirnir framleiddir af Glassriver fyrir Stöð 2.

Mikil gleði á æfingu fyrsta þáttarins sem verður á dagskrá Stöðvar 2 föstudagskvöldið 18.september kl. 18:55. Vilhelm/Vísir

Tengdar fréttir

Skráning í MasterChef Ísland

Skráning er hafin í MasterChef Ísland eða Meistarakokk Íslands. Það er til mikils að vinna því auk einnar milljónar króna fær sigurvegari þáttanna tækifæri til að útbúa og matreiða sinn eigin matseðil á einu af bestu veitingahúsum landsins.

Eastbound & Down snýr aftur

Hafnaboltastjarnan Kenny Powers snýr aftur, en sjálfselska hans og hegðun urðu til þess að honum var hent út úr meistaradeildinni. Meðal framleiðenda er grínmeistarinn Will Ferrell.

Dallas hefst 17. júní á Stöð 2

Tuttugu ár eru liðin frá því við skildum við Ewing-fjölskylduna, en framleiðendur og handritshöfundar höfðu það að markmiði að gera gamla og nýja tímanum jafn hátt undir höfði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×