Golf

Opna bandaríska hafið á velli sem Tiger segir einn af þremur erfiðustu í heimi

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Tiger Woods keppir á vellinum þar sem hann missti fyrst af niðurskurði á risamóti.
Tiger Woods keppir á vellinum þar sem hann missti fyrst af niðurskurði á risamóti. getty/Gregory Shamus

Keppni á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi hófst í dag. Mótinu lýkur á sunnudaginn.

Að þessu sinni fer Opna bandaríska fram á Winged Foot í New York sem er þekktur fyrir að vera afar erfiður völlur. Þetta er í sjötta sinn sem Opna bandaríska fer fram á Winged Foot og aðeins einu sinni hefur sigurvegarinn leikið undir pari. Það afrekaði Bandaríkjamaðurinn Fuzzy Zoeller 1984 þegar hann lék á fjórum höggum undir pari.

Opna bandaríska fór síðast fram á Winged Foot 2006. Þá stóð Ástralinn Geoff Oglivy uppi sem sigurvegari á fimm höggum yfir pari eftir dramatískan lokadag. Phil Mickelson og Colin Montgomerie fengu báðir tvöfaldan skolla á lokaholunni þegar par hefði dugað þeim til sigurs.

„Einhvers staðar á þessum 72 holum bognar þú. Að hafa leika undir pari á 72 holum væri magnað afrek,“ sagði Oglivy. 

Opna bandaríska 2006 var einnig merkilegt fyrir þær sakir að það var fyrsta sinn sem Tiger Woods komst ekki í gegnum niðurskurðinn á risamóti.

Að sögn Woods er Winged Foot einn af þremur erfiðustu golfvöllum heims ásamt Oakmont og Carnoustie.

Woods hefur þrisvar sinnum hrósað sigri á Opna bandaríska: 2000, 2002 og 2008. Árið 2000 vann hann með fimmtán högga mun sem er met á risamóti.

Sýnt verður frá öllum fjórum keppnisdögunum á Opna bandaríska á Stöð 2 Golf. Bein útsending frá mótinu hefst klukkan 16:00 í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×