Golf

Litríkur hringur hjá Guðrúnu Brá í dag

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðrún Brá Björgvinsdóttir fékk sjö skolla í dag.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir fékk sjö skolla í dag. Mynd/GSÍmyndir/SETH

Guðrún Brá Björgvinsdóttir náði ekki að fylgja eftir góðum fyrsta hring á Amundi Czech Ladies Challenge mótinu í Prag í dag.

Amundi Czech Ladies Challenge mótið er hluti af LET Access mótaröðinni sem er í öðrum styrkleikaflokki atvinnumótaraða í kvennaflokki í Evrópu.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir spilaði annan hringinn á 77 höggum eða á fimm höggum yfir pari.

Guðrún Brá var á einu höggi undir pari eftir fyrsta hringinn og spilaði því á sex höggum meira í dag en í gær.

Guðrún Brá fékk þó vara einum fugl meira í gær (3) en í dag (2). Það var hins vegar nóg af skollum en þeir urðu alls sjö talsins á hringnum.

Guðrún Brá er þar með á fjórum höggum yfir pari eftir 36 holur. Hún er eins og er í 21. sæti.

Cara Gainer er í forystu á sjö höggum undir pari en alls hafa níu kylfingar spilað fyrstu tvo hringina á undir pari.

Keppnishaldið á LET Access mótaröðinni hefur farið mikið úr skorðum á þessu ári vegna Covid-19. Guðrún Brá hefur leikið á einu móti á þessu ári á þessari mótaröð og er hún í 13. sæti á stigalistanum.

Dagana 23.-25. september mun Guðrún Brá keppa á ný á LET Access mótaröðinni á Lavaux Ladies Open sem fram fer í Sviss.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×