Viðskipti innlent

Fer frá Lands­virkjun til Eyris

Atli Ísleifsson skrifar
Stef­an­ía G. Hall­dórs­dótt­ir hefur starfað sem fram­kvæmda­stjóri markaðs- og viðskiptaþró­un­ar­sviðs Lands­virkj­un­ar.
Stef­an­ía G. Hall­dórs­dótt­ir hefur starfað sem fram­kvæmda­stjóri markaðs- og viðskiptaþró­un­ar­sviðs Lands­virkj­un­ar. Eyrir Venture Management

Stefanía Guðrún Halldórsdóttir hefur verið ráðin til Eyrir Venture Management til þess að leiða nýjan vísisjóð, Eyrir Sprotar II.

Í tilkynningu segir að Eyrir Venture Management ehf. reki fyrir vísisjóðinn Eyrir Sprotar ásamt því að annast allar sprotafjárfestingar Eyrir Invest. Að undanförnu hafi verið unnið að því að setja á fót nýjan vísisjóð, Eyrir Sprotar II, sem muni sérhæfa sig í að styðja við uppbyggingarferli íslenskra sprotafyrirtækja og verði Stefanía framkvæmdastjóri þess sjóðs.

„Stefanía Guðrún kemur til Eyrir Venture Management frá Landsvirkjun þar sem hún hefur undanfarin ár gegnt stöðu framkvæmdastjóra markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs. Áður starfaði Stefanía hjá CCP Games í átta ár, síðast sem framkvæmdastjóri CCP á Íslandi og þar áður sem yfirþróunarstjóri CCP í Shanghai í Kína og þróunarstjóri á Íslandi. Áður hafði Stefanía unnið sem yfirverkefnisstjóri í upplýsingatækni hjá Orkustofnun og sem ráðgjafi í viðskiptagreind og vöruhúsalausnum. Stefanía hefur einnig reynslu af nýsköpunarfyrirtækjum í gegnum stjórnarsetu og var stjórnarformaður fyrir Íslenskan leikjaiðnað og fyrir Icelandic Startups. Hún hefur starfað í stjórn hjá Flow VR, Tempo og er í dag stjórnarformaður Almannaróms, félags um máltækni á Íslandi og situr í stjórn Kards.

Stefanía er með M.Sc. umhverfisfræði frá tölvunarfræðiskor og B.Sc. í landfræði frá Háskóla Íslands. Stefanía er gift Snorra Árnasyni, verkfræðingi, og eiga þau þrjú börn,“ segir í tilkynningunni.

Ingvar, Sigurlína og Magnús sömuleiðis

Einnig segir að Ingvar Pétursson og Sigurlína Ingvarsdóttir hafi einnig gengið til liðs við Eyrir Venture Management með því að taka sæti í fjárfestingarráði og stjórn hins nýja vísisjóðs sem verið er að setja á fót.

„Ingvar Pétursson býr að áratuga reynslu sem stjórnandi í alþjóðlegum tæknifyrirtækjum. Hann lét nýlega af störfum sem framkvæmdastjóri fjármála (CFO) hjá Nintendo og hafði áður gengt stöðu tæknistjóra hjá félaginu (CTO). Meðal fyrri starfa Ingvars má nefna CIO Expedia, CTO Corbis og CIO AT&T Wireless. Ingvar hefur verið heiðraður af Puget Sound Business Journal og Seattle Business Magazine fyrir “lifetime achievement in Information Technology leadership“.

Sigurlína Ingvarsdóttir er margreyndur stjórnandi úr tölvuleikjaiðnaði á alþjóðavísu. Hún starfar í dag sem framleiðandi hjá Bonfire Studios í Bandaríkjunum en meðal fyrri verkefna má nefna yfirframleiðandi hjá FIFA í þróunarteymi Electronic Arts, CCP, Ubisoft og DICE þar sem hún stýrði framleiðslu tölvuleiksins Star Wars Battlefront.

Ennfremur hefur Magnús Halldórsson, sem búsettur er í Seattle í Bandaríkjunum, unnið með Eyrir Venture Management að því að opna og styrkja samtöl við erlenda fjárfesta með margs konar samstarf í huga. Magnús hefur umtalsverða reynslu af því að vinna með íslenskum sprotafyrirtækjum og aðstoða þau við erlenda tengslamyndun. Eyrir Venture Management horfir sérstaklega til þess að nýta krafta og tengingar Magnúsar og Ingvars til að auka og styrkja sambandið við erlenda samstarfaðila og meðfjárfesta.“





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×