Rafíþróttir

Í beinni: Vodafonedeildin í CS:GO, KR mætir Dusty

Dusty-KR-1200x630 (1)

Úrvalsliðin etja kappi í Vodafonedeildinni í CS:GO í kvöld. Sjötta umferð deildarinnar verður spiluð í kvöld og eru spennandi viðureignir í vændum.

Kvöldið byrjar með leik XY og Exile. Bæði lið hafa sýnt flotta takta í deildinni og eru bæði liðin sigurstrangleg. Exile mæta heitir til leiks eftir frábæra frammistöðu gegn Fylki í síðustu umferð. En XY búa yfir heimavallar forskoti og ráða því kortinu.

KR tekur á móti Dusty á heimavelli í öðrum leik kvöldsins. Bæði liðin eru taplaus í Vodafonedeildinni hingað til. Það er því til mikils að vinna og megum við búast við því að allt verði lagt á línurnar í viðureign kvöldsins.

Lokaleikur kvöldsins er Fylkir á móti GOAT. Lið Fylkis hefur spilað frábærlega í deildinni hingað til en gekk illa að klára leikinn í síðustu umferð. Spennandi verður að sjá hvernig GOAT mun takast á við Fylkislestina.

Fyrsta viðureign kvöldsins hefst kl 19:30 og verður sýnd á Stöð 2 esport og hér á Vísi.

Leikir kvöldsins verða samkvæmt dagskrá hér að neðan.

19:30 XY - Exile

20:30 KR - Dusty

21:30 Fylkir - GOAT

Útsending er hefst kl 19:15 og stendur yfir fram eftir kvöldi og hægt er að fylgjast með henni hérna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×