Bílar

BL sýnir sjö nýja bíla á Hólmavík og Ísafirði

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Hyundai Tucson verður til sýnis.
Hyundai Tucson verður til sýnis.

Söluráðgjafar BL leggja land undir fót um helgina þegar haldin verður bílasýning á alls sjö, nýjum fólksbílum, jepplingum og jeppum á Hólmavík og Ísafirði.

Sýndir verða fjórhjóladrifnu jepplingarnir Hyundai Tucson, Nissan Qashqai, Renault Koleos, Subaru Outback og Subaru XV auk hins fullvaxna Land Rover Defender, segir í fréttatilkynningu frá BL. Einnig slæst með í för 100% rafdrifni og framhjóladrifni fólksbíllinn Hyundai Kona EV sem hefur tæplega 450 km drægi á rafhlöðunni.

Renault Koleos verður einnig til sýnis.

Á Hólmavík fer bílasýningin fram á morgun, föstudaginn 18. september, milli kl. 16 og 17 við Pakkhúsið, þar sem Kaupfélag Steingrímsfjarðar rekur byggingavöruverslun. Á Ísafirði verður sýningin á laugardag við Bílaverkstæði SB ehf. við Sindragötu 3 milli kl. 12 og 16.

Í tilefni sýningarinnar á Ísafirði býður Bílaverkstæði SB viðskiptavinum sínum við Djúp ýmis afsláttarkjör af vörum og þjónustu sem hægt er að kynna sér nánar á sýningunni á laugardag.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×