Viðskipti innlent

Bein út­sending: Iðn­þing 2020

Atli Ísleifsson skrifar
Logi Bergmann ræðir við þau Ingólf Bender og Sigríði Mogensen í upphafi þings.
Logi Bergmann ræðir við þau Ingólf Bender og Sigríði Mogensen í upphafi þings. Vísir/Vilhelm

„Nýsköpun er leiðin fram á við“ er yfirskrift Iðnþings Samtaka iðnaðarins sem verður í beinni útsendingu frá Silfurbergi í Hörpu milli klukkan 13 og 14:30 í dag. Hægt verður að fylgjast með útsendingunni á Vísi.

Í tilkynningu frá Samtökum iðnaðarins segir að vegna samkomutakmarkana verði Iðnþing að þessu sinni í beinni útsendingu í stað fjölmenns viðburðar.

Vegna samkomutakmarkana verður Iðnþing að þessu sinni í beinni útsendingu í stað fjölmenns viðburðar.

„Samtök iðnaðarins vilja leggja sitt af mörkum til að hvetja til nýsköpunar á öllum sviðum atvinnulífsins nú þegar þörf er á viðspyrnu í efnahagslífinu. 

Á Iðnþingi 2020 verður kastljósinu beint að því hvernig við mætum áskorunum um fjölgun nýrra starfa. Þar gegnir nýsköpun veigamiklu hlutverki, hvort heldur er í rótgrónum fyrirtækjum eða nýjum sprotafyrirtækjum. 

Tækifærin liggja víða og á þinginu verður horft til þess hvernig nýsköpun getur drifið vöxt framtíðar.“

Hægt er að fylgjast með útsendingunni í spilaranum að neðan.

Dagskrá

  • Fundarstjórn – Logi Bergmann
  • Ávarp – Árni Sigurjónsson, formaður Samtaka iðnaðarins
  • Áskorun um fjölgun nýrra starfa – Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, og Sigríður Mogensen, sviðsstjóri hugverkasviðs SI
  • Ávarp – Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
  • Umræður I – Þórður Magnússon, stjórnarformaður Eyris, Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir, aðstoðarforstjóri CRI, Sigurður Ragnarsson, forstjóri ÍAV
  • Umræður II – Sesselja Ómarsdóttir, framkvæmdastjóri lyfjagreiningardeildar Alvotech, Guðmundur Fertram Sigurjónsson, forstjóri Kerecis, og Ágústa Guðmundsdóttir, annar tveggja stofnenda Zymetech
  • Samantekt – Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI

Á milli dagskrárliða er vitnað til orða nokkurra forkólfa í íslenskum iðnaði.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×