Viðskipti erlent

Hóta að banna Tiktok af þjóðar­öryggis­á­stæðum

Kjartan Kjartansson skrifar
Tiktok er vinsælt myndbandadeiliforrit. Bandarísk stjórnvöld saka það um að safna persónuupplýsingum um Bandaríkjamenn fyrir Kína.
Tiktok er vinsælt myndbandadeiliforrit. Bandarísk stjórnvöld saka það um að safna persónuupplýsingum um Bandaríkjamenn fyrir Kína. Vísir/EPA

Bandaríkjastjórn ætlar að banna fólki sem er statt í Bandaríkjunum að sækja kínverska samfélagsmiðiðlsforritð Tiktok og samskiptaforritið Wechat. Bannið á að taka gildi strax á sunnudag, 20. september en viðræður standa nú yfir um að færa starfsemi fyrirtækisins til Bandaríkjanna.

Wilbur Ross, viðskiptaráðherra Bandaríkjanna, segir að tilskipun sem ráðuneyti hans gaf út í dag sé ætlað að „berjast gegn fjandsamlegri söfnun Kína á persónuupplýsingum um bandaríska borgara“, að því er AP-fréttastofan hefur eftir honum.

Fólki í Bandaríkjunum verður bannað að ná í forritin. Tæknifyrirtækjunum Apple og Google verður bannað að bjóða upp á forritin í snjallforritaverslunum sínum. Þeim sem eru þegar með forritin í símum sínum verður ekki gert að eyða þeim en þeir geta ekki lengur uppfært forritin.

Ráðuneytið segir þó að Donald Trump forseti gæti enn ákveðið að hætta við bannið áður en það tekur gildi seint á sunnudag.

Bytedance, eigandi Tiktok, á nú í viðræðum við bandaríska tæknifyrirtækið Oracle um að stofna nýtt fyrirtæki utan um reksturinn til þess að sefa áhyggjur bandarískra stjórnvalda af persónuverndarsjónarmiðum.

Kínversk stjórnvöld og Bytedance hafa hafnað því að þau safni persónuupplýsingum um Bandaríkjamenn til njósna.

Reuters-fréttastofan segir að um 100 milljónir Tiktok-notenda séu í Bandaríkjunum en forritið er sérstaklega vinsælt á meðal yngri kynslóðarinnar þar. Wechat nota um nítján milljónir manna í Bandaríkunum daglega.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×