Körfubolti

Ís­lands­meistararnir fá tvo er­lenda leik­menn | Annar stiga­hæstur í Sví­þjóð á síðustu leik­tíð

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Ante og Ty munu koma til með að styrkja lið KR til muna.
Ante og Ty munu koma til með að styrkja lið KR til muna. Samsett/KRKarfa

Körfuknattleiksdeild KR staðfesti í kvöld að Ante Gospic og Ty Sabin muni leika með Íslandsmeisturunum í Dominos-deild karla í vetur. 

Gospic er 29 ára gamall kraftframherji sem kemur frá Króatíu. Hann er litlir 2.03 metrar á hæð og hefur spilað víðsvegar á ferli sínum. Á síðustu leiktíð lék hann með KK Gorica í efstu deild í Króatíu. Gerði hann 8,1 að meðaltali í leik og tók 2,8 fráköst. Þá hefur hann leikið á Spáni, í Danmörku, Þýskalandi og Rúmeníu. 

Gospic er mættur til landsins og hefur þegar hafið æfingar með Íslandsmeisturunum.

Sabin er 25 ára gamall Bandaríkjamaður sem leikur í stöðu bakvarðar. Hann hefur leikið í Danmörku og Svíþjóð undanfarin ár. Hann lék með sænska liðinu Wetterbygden Stars á síðustu leiktíð og skoraði 22,2 stig að meðaltali í leik. 

Sabin er væntanlegur til landsins á næstu dögum.

Þjálfari KR heldur vart vatni yfir nýju leikmönnum liðsins

“Við erum gríðarlega ánægðir með að hafa náð samningum við bæði Ante og Ty. Okkur líður eins og við höfum hámarkað vinningslíkurnar í útlendingalóttinu,” segir Darri Freyr Atlason, þjálfari KR, í viðtali við KRKarfa.is

“Ty Sabin var stigahæsti leikmaður sænsku deildarinnar í fyrra þar sem hann leiddi lið Wetterbygden óvænt til 5. sætis í deildinni. Ty getur skorað hvar sem er á vellinum og búið til körfur upp úr engu. Okkur þótti vanta leikmann sem krefur vörn andstæðinganna um tvöfaldanir eða aðra aðlögun,” sagði Darri einnig.

“Ante hefur skilað flottum tölum í bestu liðum efstu deildar Króatíu. Hann er þokkalega hreyfanlegur stór maður sem getur skipt út á bakverði og bundið saman varnarleik okkar á hálfum velli. Í samtölum okkar við báða leikmenn kom fram hversu mikilvægt þeim þykir að vera í liði sem ætlar sér árangur. Það skipti okkur miklu máli og fellur vel við þann kúltúr sem hefur ráðið ríkjum í Vesturbænum.”

KR mætir Njarðvík þann 1. október í Vesturbæ Reykjavíkur er nýtt tímabil í Dominos-deild karla fer stað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×