Erlent

Draga til baka um­deilda breytingu á leið­beiningum um sýna­töku

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Robert Redfield er forstjóri sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna.
Robert Redfield er forstjóri sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna. Anna Moneymaker/Getty

Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna, CDC, hefur á nýjan leik breytt opinberum ráðleggingum sínum til bandarísks almennings hvað varðar kórónuveirufaraldurinn. Í síðasta mánuði birtust ráðleggingar á vefsíðu stofnunarinnar þar sem fram kom að einstaklingar sem ekki sýndu einkenni Covid-19 ættu ekki að leitast við að fara í skimun.

Nú hefur tilmælunum verið breytt aftur og mælist stofnunin til þess að allir sem komist hafa í tæri við einstakling sem greinist með veiruna ættu að láta taka úr sér sýni. Það var hluti af opinberum leiðbeiningum stofnunarinnar áður en þeim var breytt í síðasta mánuði.

Meint óákveðni stofnunarinnar í þessum málum hefur vakið talsverða athygli vestanhafs. Til að mynda hafa borist fréttir af því að ráðleggingunum hafi verið breytt að frumkvæði annarra en sérfræðinga á vegum stofnunarinnar. Sumir ganga svo langt að segja að það hafi verið gert þvert gegn ráðleggingum þeirra.

Einhver telja forsetann á bak við breytinguna

Samkvæmt frétt BBC hafa einhverjir velt því upp að breytingin í síðasta mánuði hafi verið gerð til þess að þóknast Donald Trump Bandaríkjaforseta. Hann hafi viljað draga úr fjölda þeirra sem greinast með því að letja fólk til þess að fara í sýnatöku. Bandaríkin er það land þar sem flestir einstaklingar hafa greinst með veiruna, eða rúmlega 6,9 milljónir. Yfir 200.000 hafa látið lífið af völdum Covid-19 í Bandaríkjunum.

Forsetinn hefur þó ítrekað haldið því fram að vel hafi verið tekist á við faraldurinn og að ástæða þess að flest smit væru greind í Bandaríkjunum væri sú að ekkert ríki hefði prófað fleiri. Það er þó ekki rétt. Til að mynda hafa verið framkvæmd hlutfallslega fleiri próf við veirunni á Íslandi, en þó eru staðfest smit hlutfallslega færri hér á landi en í Bandaríkjunum.

Trump forseti hefur sagst áhugasamur um að láta draga úr umfangi skimunar fyrir kórónuveirunni.Alex Wong/Getty

Á stuðningsmannafundi í júní greindi Trump frá því að hann hefði beðið embættismenn innan heilbrigðisgeirans í Bandaríkjunum um að draga úr fjölda þeirra sem skimaður er fyrir veirunni. Talsmaður á vegum Hvíta hússins hefur síðan þá sagt að um grín hafi verið að ræða.

Þá hafa talsmenn ríkisstjórnar forsetans sagt að breytingin í síðasta mánuði hafi ekki verið gerð með pólitík í huga. Sérfræðingar í sóttvörnum hafa þó fagnað því að hún hafi verið dregin til baka.

„Viðsnúningur í átt að vísindalegri nálgun á skimunarleiðbeiningar frá CDC eru góðar fréttir fyrir lýðheilsu og sameinaða baráttu okkar gegn þessum faraldri,“ hefur BBC til að mynda eftir Thomas File, forseta samtaka um smitsjúkdóma í Bandaríkjunum.


Tengdar fréttir

Draga úr skimun til að fegra ímynd forsetans

Hvíta húsið er hætt að reyna að halda aftur af útbreiðslu Covid-19 í Bandaríkjunum. Þess í stað er markmiðið að vernda viðkvæma hópa, koma á einhvers konar eðlilegu ástandi og bæta ímynd Donald Trump, forseta varðandi faraldurinn.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×