Erlent

Heitir því að greiða atkvæði um nýjan hæstaréttardómara

Samúel Karl Ólason skrifar
Mitch McConnell, forseti öldungadeildar Bandaríkjaþings.
Mitch McConnell, forseti öldungadeildar Bandaríkjaþings. AP/Jacquelyn Martin

Mitch McConnell, forseti öldungadeildar Bandaríkjaþings, segir að ef Donald Trump, forseti, tilnefni mann til að taka við af Ruth Bader Ginsburg í Hæstarétti Bandaríkjanna, muni öldungadeildin greiða atkvæði um tilnefninguna. Demókratar hafa brugðist reiðir við og kalla eftir því að enginn verði staðfestur í embættið fyrr en eftir embættistöku nýs forseta, eða Trumps, í nóvember.

Ginsburg sjálf hafði sagt að hennar helsta ósk væri að ekki yrði fyllt í stöðuna fyrr en nýr forseti tæki við embætti.

Deilurnar munu án efa hafa mikil áhrif á forsetakosningarnar sem fara fram þann 3. nóvember.

Eftir að hæstaréttardómarinn Antonin Scalia dó í febrúar 2016, neitaði McConnell, sem var þá einnig forseti öldungadeildarinnar, að láta greiða atkvæði um tilnefningu Marrick B. Garland til Hæstaréttar. McConnell sagði það ekki rétt þegar svo lítið væri eftir að forsetatíð Barack Obama. Forsetakosningar fóru einnig fram í nóvember 2016.

Í yfirlýsingu frá McConnell segir að Repúblikanar hafi haldið meirihluta sínum í kosningunum 2016 og aukið hann í kosningunum 2018 vegna þess að þeir hafi heitið því að vinna með Trump og styðja stefnumál hans. Sérstaklega varðandi að tilefna alríkis- og hæstaréttardómara.

„Við munum aftur standa við loforð okkar. Sá sem Trump tilnefnir mun fá atkvæðagreiðslu,“ sagði McConnell.

McConnell stöðvaði einnig tilnefningar allra alríkisdómara á síðasta ári Obama. Um markvissa áætlun Repúblikana er að ræða sem snýr að því að gera dómskerfi Bandaríkjanna íhaldssamara. Árið 2017 sagði Trump á ríkisstjórnarfundi að þessi áætlun myndi hafa áhrif áratugi fram í tímann.

Sjá einnig: „Þetta mun hafa afleiðingar 40 ár fram í tímann“

Chuck Schumer, sem leiðir minnihluta Demókrata í öldungadeildinni, sagði í kjölfar dauða Ginsburg að Bandaríska þjóðin ætti að fá að segja sitt um hver verði skipaður til Hæstaréttar. Ekki ætti að fylla stöðuna fyrr en eftir embættistöku.

Vitnaði hann orðrétt í það sem McConnell sagði í febrúar 2016.

McConnell segir aðstæður vera aðrar en þær voru árið 2016. Repúblikanar stjórni bæði Hvíta húsinu og öldungadeildinni. Minnst tveir öldungadeildarþingmenn hafa þó sagt á undanförnum mánuðum að þau myndu ekki styðja það að tilnefna einhvern til Hæstaréttar í aðdraganda kosninganna.

Öldungadeildarþingkonan, Susan Collins, sem er á þingi frá Maine og fyrir Repúblikanaflokkinn, sagði fyrr í þessum mánuði að hún myndi ekki styðja slíkar aðgerðir þegar svo stutt er í kosningar. Hún stendur þar að auki mjög höllum fæti og þykir líkleg til að tapa þingsæti sínu í kosningunum.

Lisa Murkowski, sem einnig er þingkona Repúblikanaflokksins á öldungadeildinni, sló á svipaða strengi í gær, áður en dauði Ginsburg var staðfestur. Þá var hún í viðtali í Alaska og sagði að hún myndi ekki greiða atkvæði með tilnefningu til Hæstaréttar svo nærri kosningum.

Í kjölfar dauða Ginsburg hafa aðstoðarmenn beggja þingkvennanna þó neitað að staðfesta að þær standi við ummælin, samkvæmt frétt Washington Post.

McConnell sendi bréf á alla þingmenn sína seint í gær og hvatti þá til að forðast yfirlýsingar um ferlið og hvort þau væru hlynnt því að skipa nýjan dómara eða ekki.

„Fyrir ykkur sem eruð ekki viss um hvernig þið eigið að svara, eða sem hallast að því að vera á móti því að greiða atkvæði um tilnefningu, hvet ég ykkur til að bíða,“ skrifaði McConnell. „Núna er ekki rétti tíminn til að binda ykkur við afstöðu sem þið munið mögulega sjá eftir seinna.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×