Viðskipti erlent

Trump gefur TikTok blessun sína

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Trump sagði í gær að hann gæfi yfirvofandi samningi TikTok við bandarísku fyrirtækin Oracle og Walmart blessun sína. 
Trump sagði í gær að hann gæfi yfirvofandi samningi TikTok við bandarísku fyrirtækin Oracle og Walmart blessun sína.  Getty/Alex Wong/Avishek Das

Kínverska fyrirtækið ByteDance, eigandi samfélagsmiðilsins TikTok hefur óskað eftir því að virði TikTok verði metið á 60 milljarða Bandaríkjadala, eða um 8.178 milljarða íslenskra króna. Samningaviðræður ByteDance við bandarísku fyrirtækin Oracle og Walmart standa nú yfir um að þau kaupi hlut í samfélagsmiðlinum til þess að stemma stigu við áhyggjur bandarískra yfirvalda um öryggi miðilsins.

Fréttastofa Bloomberg greinir frá þessu og hefur eftir heimildamanni sem ekki vildi koma fram undir nafni. Oracle mun kaupa 12,5 prósenta hlut í TikTok Global og mun geyma allar upplýsingar um bandaríska notendur í gagnagrunni sínum til þess að koma til móts við kröfur bandarískra stjórnvalda. Walmart hefur gefið út að það hyggist kaupa 7,5 prósenta hlut í fyrirtækinu.

Fyrirtækin tvö munu greiða um 12 milljarða dali, eða um 1.634 milljarða króna, fyrir hluti sína í fyrirtækinu ef þeir samþykkja 60 milljarða dala virði TikTok.

ByteDance, TikTok, Oracle og Walmart hafa ekki svarað fyrirspurnum varðandi málið.

Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í gær að hann væri hlynntur kaupsamningnum, sem mun gera það að verkum að TikTok verður enn í notkun í Bandaríkjunum. Trump hefur gefið út tilskipun að forritið verði bannað í Bandaríkjunum og hefur vísað í það að öryggi bandarískra notenda þess sé ekki tryggt.

Hann hefur haldið því fram að upplýsingar um notendur TikTok hafi ratað til kínverskra stjórnvalda, en þeim ásökunum hafa TikTok og ByteDance harðlega neitað.

Samningurinn mun ekki hafa áhrif á bannið á kínverska samfélagsmiðlinum WeChat, sem forsetinn hefur banað, og mun það vera ófáanlegt í Bandaríkjunum frá og með kvöldinu í kvöld, sunnudagskvöldi.


Tengdar fréttir

Ekkert verður af kaupum Micros­oft á TikTok

Tölvurisinn Microsoft tilkynnti um það í nótt að ekkert verði af fyrirhuguðum kaupum þess á starfsemi kínverska samskiptamiðlilsins TikTok í Bandaríkjunum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×