Erlent

Segir Trump misnota vald sitt

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Biden vill ekki að Trump fái að tilnefna hæstaréttardómara fyrir kosningarnar í nóvember.
Biden vill ekki að Trump fái að tilnefna hæstaréttardómara fyrir kosningarnar í nóvember. Drew Angerer/Getty

Joe Biden, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna og forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins, hefur kallað fyrirætlanir Donalds Trump Bandaríkjaforseta um að tilnefna hæstaréttardómara fyrir kosningarnar í nóvember, misnotkun á valdi.

Á föstudag var greint frá andláti Ruth Bader Ginsburg hæstaréttardómara, og því er nú óskipað eitt níu sæta við réttinn. Trump hefur þegar lýst því yfir að í næstu viku muni hann tilnefna nýjan dómara, sem hann segir að verði kona. Öldungadeild Bandaríkjaþings greiðir atkvæði um þann sem forsetinn tilnefnir.

Margir andstæðingar forsetans hafa lýst sig mótfallna þessum fyrirætlunum forsetans. Verði af þeim munu sex af níu dómurum við réttinn hafa verið skipaðir af Repúblikönum, og hinir þrír af Demókrötum. Ginsburg var skipuð af Demókratanum Bill Clinton árið 1993.

Í febrúar 2016, rúmu hálfu ári í forsetakosningar, lýstu Repúblikanar yfir að ekki yrði greitt atkvæði um tilnefningu Marrick B. Garland til Hæstaréttar, eftir að Antonin Scalia dó. Mitch McConnell, forseti öldungadeildarinnar, sagði of stutt í kosningar og að nýr forseti ætti að fá að tilnefna í embættið.

Nú, þegar um einn og hálfur mánuður er til kosninga kveður þó við nýjan tón hjá McConnell og hefur hann sagt það skyldu flokksins að skipa nýjan dómara. Hefur heitið því að atkvæðagreiðsla um tilnefningu forsetans fari fram fyrir kosningar.

Þá sagði Ginsburg sjálf, skömmu fyrir andlát sitt, að hennar heitasta ósk væri sú að ekki yrði skipað í embætti hennar fyrr en nýr forseti hefði tekið við embætti.

Donald Trump vill fá að tilnefna hæstaréttardómara fyrir kosningarnar í nóvember.Alex Wong/Getty

Biðlar til þingmanna Repúblikana

Joe Biden telur að þessar fyrirætlanir Trump og McConnell, að skipa dómara fyrir kosningar, séu misnotkun valds. Það gerði hann skýrt í ræðu sem hann hélt í Philadelphia í dag.

„Stjórnarskrá Bandaríkjanna gerir það að verkum að Bandaríkjamenn eiga þess kost að hlustað sé á þá. Þeir ættu að gera það ljóst að þeir munu ekki samþykkja þessa misnotkun valds.“

Þá biðlaði hann til Repúblikana í öldungadeild þingsins, sem eru í meirihluta, að fylgja sannfæringu sinni og greiða ekki atkvæði með tilnefningu forsetans. Nú þegar hafa tveir þingmenn Repúblikana, þr Lisa Murkowski og Susan Collins, sagst styðja það að atkvæðagreiðslunni yrðu frestað þar til eftir kosningarnar 3. nóvember. Minnst tveir öldungadeildarþingmenn Repúblikana þyrftu að styðja þær hugmyndir, ef þær ættu að verða að veruleika.

Biden sagði einnig að ef hann kæmi til með að vinna kosningarnar yrði að draga tilnefningu Trump til baka. Þá sagðist hann ætla að ráðfæra sig við þingmenn beggja flokka áður en hann myndi tilnefna dómara.

Hann bætti því við að hann teldi ekki rétt að hann gæfi opinberlega út lista yfir þá dómara sem hann teldi fýsilegt að skipa í réttinn. Slíkt gæti leitt til þess að umræddir dómarar þyrftu að sæta pólitískum árásum. Hann sagði þó að möguleg útnefning hans myndi brjóta blað í sögunni og verða „fyrsta afrísk-ameríska konan við réttinn.“


Tengdar fréttir

Segist ætla að tilnefna konu til Hæstaréttar

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segist ætla að tilnefna konu til að taka við sæti Ruth Bader Ginsburg í Hæstarétti Bandaríkjanna. Hann segist þar að auki ætla að tilnefna konuna sem fyrst.

Heitir því að greiða atkvæði um nýjan hæstaréttardómara

Mitch McConnell, forseti öldungadeildar Bandaríkjaþings, segir að ef Donald Trump, forseti, tilnefni mann til að taka við af Ruth Bader Ginsburg í Hæstarétti Bandaríkjanna, muni öldungadeildin greiða atkvæði um tilnefninguna.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×