Bílar

Volkswagen íhugar að selja Bugatti til Rimac fyrir lok árs

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Bugatti Chiron.
Bugatti Chiron.

Volkswagen Group ihugar að selja Bugatti vörumerkið til rafbílaframleiðandans Rimac fyrir lok árs. Salan á að vera liður í samþjöppun vörumerkja Volkswagen.

Ætluð sala, hefur ekki formlega verið staðfest ennþá var aðal umræðuefni á stjórnarfundi hjá Volkswagen nýlega. Herbert Diess, stjórnarformaður er bjartsýnn á söluna og að hún klárist fyrir lok ársins, samkvæmt heimildum Germany's Managers Magazin.

Herbert Diess, stjórnarformaður Volkswagen Group.Vísir/EPA

Til að gera Rimac kleift að kaupa Bugatti er líklegt að Porsche se, erm í eigu Vilkswagen Group auki hlut sinn í Rimac úr 15,5% í um 49%. Það þýðir að einhvern hluta sölunnar er Volkswagen Group, þá í gegnum Porsche að kaupa Bugattia af sjálfu sér.

Volkswagen Group mun þá hafa ákveðið ákvörðunarvald þegar kemur að málefnum Bugatti. Bugatti, Porsche og Rimac hafa ekki viljað tjá sig um málið.

Undir stjórn Diess er verið að endurskipuleggja Volkswagen Group og dótturfyrirtæki þess með skýr markmið um rafvæðingu samgangna og áherslu á fjöldaframleiðslu.

Lúxus merki eins og Bentley, Bugatti og Lamborghini ásamt mótorhjólaframleiðandanum Ducati og hönnunarstofunni Italdesign eru öll til skoðunar. Volkswagen Group er að leitast við að lækka kostnað og gæti því þurft eða viljað skera af sér vörumerki sem kannski skila ekki eins miklum hagnaði og Audi, Volkswagen, Seat og Skoda.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×