Veður

Ró­legra eftir átök helgarinnar

Atli Ísleifsson skrifar
Sums staðar á norðanverðu landinu má búast við éljum.
Sums staðar á norðanverðu landinu má búast við éljum. Veðurstofan

Veðrið hefur nú róast töluvert eftir átök helgarinnar, en í dag verður suðvestlæg eða breytileg átt, 5 til 13 m/s og víða skúrir. Sums staðar verða þó él um landið norðanvert.

Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef veðurfræðings. Ennfremur segir að austantil á landinu verði hins vegar þurrt og nokkuð bjart fyrri part dags. Hiti 1 til 8 stig yfir daginn, hlýjast syðst.

„Á morgun gengur í norðaustan 10-18 með slyddu eða rigningu norðvestantil á landinu. Annars staðar verður veðrið keimlíkt og í dag, en vindur verður hægari.“

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag (haustjafndægur): Norðaustan 10-18 m/s NV-til, annars hægari breytileg átt. Víða skúrir, en sums staðar él um landið N-vert. Úrkomulítið A-lands framan af degi. Hiti 1 til 7 stig.

Á miðvikudag: Norðlæg átt 8-15 og rigning S-til, en él NV-lands. Mun hægari og þurrt um landið NA-vert. Hiti 0 til 5 stig, en í kringum frostmark fyrir norðan.

Á fimmtudag: Norðlæg átt og dálitlar skúrir eða él N-lands, en rigning SA-til. Léttskýjað um landið SV-vert. Hiti 0 til 7 stig yfir daginn.

Á föstudag: Vaxandi suðaustanátt og fer að rigna S- og V-lands, en bjart með köflum um landið NA-vert. Hlýnandi veður.

Á laugardag: Suðlæg átt og rigning, en úrkomulítið NA-til. Milt í veðri.

Á sunnudag: Útlit fyrir breytilega átt og dálitlar skúrir. Hiti 4 til 8 stig.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×