Lífið

Stjörnulífið: Þannig týnist tíminn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Veiran stöðvar aldrei Instagram-flæðið.
Veiran stöðvar aldrei Instagram-flæðið.

Stjörnulífið er liður á Vísi en þar verður farið yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera undanfarna daga og jafnvel deila því með fylgjendum sínum. 

Inga Lind Karlsdóttir fjölmiðlakona var á meðal keppenda á tennismóti í anda US-open sem fram fór í Tennishöllinni í Kópavogi. Sendiherra Bandaríkjanna setti mótið og var mikil stemning í Kópavogi.

Ráðherrann fór í loftið á RÚV í gærkvöldi og virðast viðtökurnar góðar á samfélagsmiðlum. Aníta Briem er þakklát fyrir að hafa fengið að taka þátt í verkefninu. 

Kristbjörg Jónasdóttir er komin 38 vikur á leið en hún og Aron Einar Gunnarsson eiga von á sínu þriðja barni saman. 

Albert Guðmundsson atvinnumaður í knattspyrnu og Guðlaug Elísa Jóhannsdóttir fyrirsæta eignuðust sitt fyrsta barn um helgina. Drengurinn fékk nafnið Guðmundur Leó í höfuðið á afa sínum, Guðmundi Benediktssyni.

 Sunneva Einars birti fallega mynd um helgina. 

Kelsey Henson er einnig komin 38 vikur á leið en þau Hafþór Júlíus Björnsson eiga von á sínu fyrsta barni saman.

Svala Björgvinsdóttir er heldur betur ánægð með nýja kærastann. Hann er dýrmætur, segir Svala.

 María Birta gerði sig fína fyrir brúðkaup og átti góða viku. 

Björn Ingi Hrafnsson rifjar upp gamlar myndir. Hann hefur heldur betur breyst í útliti frá árinu 1993 og segir, þannig týnist tíminn.

Leikkonan Ragnheiður Ragnarsdóttir ferðaðist um landið í sumar og skellti sér út í á.

 Auðunn Blöndal vinnur nú að þáttunum Tónlistarmennirnir okkar. Hann fjallar meðal annars um Birgittu Haukdal í þáttunum og fóru þau í Geosea laugina á Húsavík þaðan sem Birgitta á ættir sínar að rekja. 

Salka Sól og Arnar Freyr Frostason fóru með dóttur sína á hestbak. 

Herra Hnetusmjör líður vel með kærustunni, Söru Linneth, þó það sjáist kannski ekki endilega á myndinni sem hann birti.

Eiður Smári átti góðan afmælisdag í vikunni og var þakklátur fyrir allar kveðjurnar. Knattspyrnukempur um heim allan sendu Eiði Smára kveðjur.

Elísabet Gunnars fór í skimun í Danmörku eftir Íslandsdvölina og var niðurstaðan úr fyrsta prófi neikvætt. 

Daði Freyr er farinn að gigga. 

Annie Mist stolt af vinkonu sinni Katrínu Tönju sem tryggði sig á heimsleikana í Crossfit um helgina.

Annie Mist fagnaði sjálf afmæli sínu um helgina. Kempan er 31 árs.

Anna Mjöll Ólafsdóttir söngkona skellti sér í göngutúr í Vail í Colorado. Um er að ræða eitt flottasta skíðasvæði Bandaríkjanna og margir vestan hafs vafalítið spenntir fyrir því þegar snjóinn fer að festa í fjöllunum.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×