Innlent

„Ég fékk ekkert boðskort um að það væri verið að fljúga hérna yfir“

Nadine Guðrún Yaghi og Sylvía Hall skrifa
Helgu Kristínu var verulega brugðið.
Helgu Kristínu var verulega brugðið. Vísir/Egill

Íbúi í Kópavogi segist hafa fengið hálfgert áfall þegar flugvél Air Atlanta var flogið yfir húsi hennar í dag. Hún hélt að vélin væri á leið inn í húsið. Þá varð fleirum bylt við þegar vélinni var flogið í lágflugi yfir höfuðborgarsvæðið.

Flugvélin er af gerðinni Boeing 747 og er ný í flota Air Atlanta. Félagið fékk leyfi til að fljúga vélinni yfir höfuðstöðvar sínar í Kópavogi fyrir lendingu í Keflavík. Hún tók þannig „slaufu“ yfir borginni, líkt og sést á þessari mynd af FlightRadar.

Fréttastofa fékk fjölda ábendinga um flug vélarinnar í dag frá íbúum allt frá Vesturbæ Reykjavíkur og upp í Norðlingaholt. Mörgum var brugðið og þótti vélin vera helst til lágt á lofti. Töldu sumir að um nauðlendingu væri að ræða.

Flugvélin fór ekki framhjá Helgu Kristínu Torfadóttur sem býr í Lindarhverfi í Kópavogi og deildi sinni upplifun með fréttastofu.

„Það byrjaði allt að nötra og ég leit út um gluggann og sá flugvélina fyrir framan mig og tók strax eftir því að þetta var mjög óeðlilegt.“

Þakið á húsinu sé í 60 metrum yfir sjávarmáli.

„Mitt mat á hæð flugvélarinnar miðað við húsið mitt var að hún var svona 20 til 30 metrum fyrir ofan húsþakið mitt,“ segir Helga Kristín.

„Ég var rosa hrædd sko og mér fannst eins og hún væri í alvöru að fara að stefna á húsið mitt.“

„Gæslan flýgur oft hérna yfir en í góðri hæð og það eru alveg nógu mikil læti en þetta var allt of nálægt og ég var í hálfgerðu áfalli eftir þetta."

Samkvæmt upplýsingum frá Air Atlanta koma flugvélar félagsins sjaldan til landsins og félagið reynir því að fá leyfi til þess að fljúga nýjum vélum yfir höfuðstöðvarnar til að gleðja starfsmenn þegar tækifæri gefst. 

Félagið telur ekki ástæðu til að vara sérstaklega við flugferðum af þessu tagi, öll leyfi hafi fengist fyrir fluginu sem hafi flogið yfir lágmarkshæð. Þetta hafi verið gert til að gleðja en ekki hræða.

Helga Kristín segist engan áhuga hafa á að sjá vél í lágflugi við hús sitt.

„Ég fékk ekkert boðskort um að það væri verið að fljúga hérna yfir og það var gjörsamlega ekki skemmtilegt frá minni hlið og annarra sem ég hef heyrt. Þetta var bara „traumatæsing“.“

Á vefsíðunni Flightaware kemur fram að flugvélin hafi lægst farið í um 210 metra hæð yfir Reykjavík. Greinilegt er að mörgum borgarbúum leið eins og vélin hefði verið töluvert nær jörðu.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×