Innlent

Mikilvægt að fólk sé vakandi fyrir Alzheimer

Nadine Guðrún Yaghi skrifar
Ellý Katrín Guðmundsdóttir og Magnús Karl Magnússon.
Ellý Katrín Guðmundsdóttir og Magnús Karl Magnússon. Vísir/Egill

Kona með Alzheimer og eiginmaður hennar segja gríðarlega mikilvægt að fólk sé vakandi um sjúkdóminn og rétti þeim sem þurfa fram hjálparhönd.

Ellý Katrín greindist með Alzheimersjúkdóminn fyrir fjórum árum, þá 51 árs gömul. Hún starfaði þá sem borgarritari. Eftir greininguna vann hún í hlutastarfi á umhverfissviði þar til í fyrra. Hún ákvað strax að vera hreinskilin um sjúkdóminn.

„Það var svo mikið pukur um þennan sjúkdóm. Hann er náttúrulega erfiður þessi sjúkdómur,“ segir Ellý, en bætir við að það hafi hjálpað henni gríðarlega mikið að opna sig.

„Svo eru það þessi verkefni sem fyrir okkur eru einföld verkefni, en verða svolítið flóknari. Eins og að leggja á borð, hvert diskurinn fer og í hvaða röð hnífapörin fara niður,“ segir Magnús Karl Magnússon, eiginmaður Ellýar.

Ellý hafi gert ferlið auðveldara með því að vera ekki að fela neitt.

„Hreinskilnin gefur fólki tækifæri á að sýna ást og umhyggju og kannski minna á að þegar svona stór leyndardómur er þá verða einfaldar spurningar eins og „hvernig hefur þú það?“ flóknar þegar stærsta fréttin er ósögð,“ segir Magnús.

Í dag er alþjóðlegi Alzheimerdagurinn. Ellý og Magnús héldu fyrirlestur á rafrænni málstofu Alzheimersamtakanna í tilefni dagsins. Yfirskrift málstofunnar er styðjandi samfélag fyrir fólk með heilabilun.

Magnús segir gríðarlega mikilvægt að fólk sé vakandi um sjúkdóminn og rétti fram hjálparhönd til dæmis í matvöruverslunum.

„Eins og þið sjáið, Ellý lítur ekki út eins og hún sé sjúklingur. Þetta er ósýnilegur sjúkdómur að mörgu leyti þannig að fólk þarf að vera vakandi. Það þarf ekki endilega að spyrja hvort það sé með heilabilun heldur hvort það geti aðstoðað þegar fólk sér að einhver veit ekki alveg hvað hann á að gera.“

Hann hvetur alla til að gerast svokallaðir heilavinir, fólk þurfi ekki að hræðast Alzheimer.

„Fólk er hrætt við þennan sjúkdóm. Við þurfum bara að tala um hann eins og hverja aðra sjúkdóma – lífið heldur áfram.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×