Innlent

Kuldi og væta í kortunum

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Reykjavík í rigningu
Reykjavík í rigningu Foto: Vilhelm Gunnarsson/Vilhelm Gunnarsson

Það verður frekar kalt á landinu í dag og víða dálitlar skúrir, jafnvel sums staðar él um norðanvert landið, að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands.

Þá verður fremur hæg suðvestlæg eða breytileg átt en eftir hádegi gengur hann í norðaustan með 10 til 18 metrum á sekúndu norðvestantil. Austantil á landinu verður þurrt og bjart fram eftir degi. Hiti á bilinu 3 til 8 stig að deginum.

Á morgun er spáð norðlægri átt 8 til 15 metrum á sekúndu en hægari vindur um landið norðaustanvert. Það verður éljagangur fyrir norðan og dálítil væta suðaustantil en bjart að mestu suðvestanlands.

Svo kólnar heldur, hitinn verður víða á bilinu 0 til 5 stig yfir daginn. Seint annað kvöld hlýnar við norðurströndina með rigningu eða slyddu.

Veðurhorfur á landinu:

Suðvestlæg eða breytileg átt 3-10 m/s, en gengur í norðaustan 10-18 norðvestantil eftir hádegi. Víða dálitlar skúrir, en sums staðar él um landið norðanvert, og lengst af úrkomulítið austantil. Hiti 3 til 8 stig yfir daginn.

Norðlæg átt 8-15 á morgun, en hægari um landið norðaustanvert. Dálítil væta suðaustantil, og él fyrir norðan, en léttir til suðvestanlands. Hiti 0 til 5 stig. Rigning eða slydda við norðurströndina seint annað kvöld.

Á miðvikudag:

Norðlæg átt 8-15 m/s, en hægari um landið NA-vert. Dálítil rigning SA-til, og él fyrir norðan, en léttir til SV-lands. Hiti 0 til 5 stig að deginum. Rigning eða slydda við N-ströndina seint um kvöldið.

Á fimmtudag:

Norðlæg átt 8-13 og dálitlar skúrir eða él N-lands, en víða léttskýjað um landið S-vert. Lægir og styttir upp síðdegis. Hiti 1 til 8 stig yfir daginn, mildast syðst.

Á föstudag:

Hæg breytileg átt og víða bjartviðri. Hiti 2 til 8 stig, en um og undir frostmarki fyrir norðan. Vaxandi suðaustanátt og þykknar upp S- og V-lands seinnipartinn.

Á laugardag:

Ákveðin suðlæg átt og rigning, en úrkomulítið NA-til. Hiti 6 til 11 stig.

Á sunnudag:

Suðlæg átt og skúrir S- og V-lands, en léttskýjað um landið NA-vert. Hiti 4 til 9 stig.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×