Innlent

38 manns greindust innan­lands

Atli Ísleifsson skrifar
202 hafa greinst smitaðir innanlands síðustu fjóra daga.
202 hafa greinst smitaðir innanlands síðustu fjóra daga. Vísir/Vilhelm

38 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Helmingurinn, eða nítján, var ekki í sóttkví við greiningu.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á vefnum covid.is, en alls hafa þá 202 greinst innanlands síðustu fjóra sólarhringa. Tveir eru á sjúkrahúsi vegna Covid-19 líkt og í gær.

Þrjú smit greindust á landamærum - eitt virkt, eitt virkt eftir seinni skimun og er beðið niðurstöðu mótefnamælingar í einu tilvikanna.

281 manns eru nú í einangrun, samanborið við 242 í gær. Þá fjölgar þeim sem eru í sóttkví, eru 2.283 í dag en voru 2.102 í gær.

Af þeim 38 sem greindust innanlands var um 31 einkennasýni að ræða, fjögur við sóttkvíar- og handahófsskimun og þrjú við skimun hjá ÍE.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur er nú 68,4 en var 59,7 í gær. Þá er nýgengi landamærasmita nú 4,9, en var 4,6 í gær.

Nú hafa 2.419 manns greinst smitaðir af kórónuveiru frá upphafi faraldursins. Tíu þeirra sem hafa veikst af Covid-19 eru látnir.

Alls voru tekin 1.872 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær og 461 sýni á landamærunum eða í seinni landamæraskimun. Þá voru 1.797 sýni tekin í annarri skimun hjá Íslenskri erfðagreiningu. Þá voru 177 sýni tekin við sóttkvítar- og handahófsskimun.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×