Íslenski boltinn

Rúmir tveir mánuðir síðan Víkingur vann síðast leik

Anton Ingi Leifsson skrifar
Það hefur ekki verið mikil gleði yfir Víkingunum að undanförnu.
Það hefur ekki verið mikil gleði yfir Víkingunum að undanförnu. vísir/bára

Það hefur ekki gengið sem skildi hjá Víkingi í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu. Liðið stefndi á Íslandsmeistaratitilinn en situr í níunda sæti deildarinnar, átta stigum frá fallsæti.

Eftir bikarmeistaratitilinn á síðasta ári og með breyttum, skemmtilegum fótbolta undir stjórn Arnars Gunnlaugssonar voru Víkingar spenntir fyrir komandi tímabili.

Gengið hefur hins vegar ekki verið upp á marga fiska og hefur liðið einungis unnið þrjá sigra í þeim fjórtán umferðum sem spilaðar hafa verið. Liðið hefur gert sex jafntefli og tapað fimm leikjum.

Liðið hefur ekki unnið í síðustu átta deildarleikjum; fjögur jafntefli og fjögur töp. Síðasti sigurleikur liðsins kom gegn ÍA 19. júlí og eru rúmir tveir mánuðir síðan; nánar tveir mánuðir og þrír dagar.

Það er spurning hvort að Víkingarnir nái að vinna sinn fyrsta leik í rúma tvo mánuði er liðið mætir Fylki í Árbænum á fimmtudaginn. Þar verða þeir þó án Óttars Magnúsar Karlssonar sem er farinn í atvinnumennsku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×