Handbolti

Send heim frá Íslandi döpur í bragði | Segir FH ekki hafa viljað greiða bætur

Sindri Sverrisson skrifar
Zandra Jarvin hefur spilað með yngri landsliðum Svíþjóðar.
Zandra Jarvin hefur spilað með yngri landsliðum Svíþjóðar.

FH-ingar kváðust afar spenntir yfir komu hinnar tvítugu Zöndru Jarvin í sumar en hafa nú rift samningi við handboltakonuna og sent hana heim til Svíþjóðar.

Í tilkynningu frá handknattleiksdeild FH síðasta föstudag sagði að deildin hefði „komist að samkomulagi við sænska leikmanninn Zöndru Jarvin að rifta samningi aðila á milli.“

Jarvin segir þessa ákvörðun hafa verið algjörlega einhliða ákvörðun FH, og að félagið virðist ekki hafa viljað greiða uppeldisbætur til hennar fyrra félags sem að hennar sögn námu 8.000 evrum, eða 1,3 milljón króna.

Þessu greindi Jarvin frá í viðtali í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar, og kvaðst afar leið yfir þeirri niðurstöðu að fá ekkert að spila með FH. Hún hafi samið til tveggja ára við félagið.

FH tilkynnti um komu Zöndru Jarvin í júlí.

„Þetta var ekki sameiginleg ákvörðun [að rifta samningnum]. Ég fékk ekkert val. Þeir sögðu mér bara að svona væri þetta og að ég yrði bara að sætta mig við þetta,“ sagði Jarvin í þættinum, og staðhæfði að uppeldisbæturnar hefðu ráðið því hvernig fór. FH-ingar virðist hreinlega ekki hafa unnið heimavinnuna og ekki gert sér grein fyrir því hvaða upphæð þeir þyrftu að greiða.

„Verulega ófagmannlegt hjá FH“

„Þetta er aðalástæðan. En í samningnum mínum stóð að ef að kórónuveiran væri í gangi á Íslandi þá gæti félagið sent mig heim á forsendum tengdum henni. Ég held að það verði ástæðan sem þeir muni gefa upp fyrir því að rifta samningum. En þeir sögðu mömmu minni og mér að aðalástæðan væri þessar uppeldisbætur.

Ég hefði haldið að þeir væru búnir að skoða þetta áður en ég kom og skrifaði undir samninginn. Þeir sögðu mér að þeir hefðu ekki vitað að upphæðin yrði svona há,“ sagði Jarvin sem hefur verið á Íslandi frá því 14. ágúst og hlakkaði til að spila með nýliðunum í Olís-deildinni, undir stjórn Jakobs Lárussonar.

„Mér finnst þetta verulega ófagmannlegt hjá FH. Mér finnst líka leitt að þurfa að fara því ég var búin að kynnast stelpunum og Kobba þjálfara og líkaði vel við þau. Ég vil vera hérna áfram en það er ekkert við þessu að gera.“

Ásgeir Jónsson, formaður handknattleiksdeildar FH, vildi ekki tjá sig um fullyrðingar Jarvin eða málið að nokkru leyti þegar Vísir náði tali af honum í gær.


Tengdar fréttir

FH riftir samning sænska leikstjórnandans

Handknattleiksdeild FH hefur rift samningi sínum við Zöndru Jarvin og mun hún því ekki spila með liðinu í Olís-deild kvenna í vetur.

Sænskur leikstjórnandi til FH

FH hefur gert samning við sænsku handknattleikskonuna Zandra Jarvin um að spila með liðinu næstu tvö árin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×