Lífið

Gleyma eða geyma: Myndir af fyrrverandi maka á samfélagsmiðlum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hér má sjá hamingjusamt par á Times Square í New York. Fengi þessi mynd að lifa af á Facebook eftir sambandsslit?
Hér má sjá hamingjusamt par á Times Square í New York. Fengi þessi mynd að lifa af á Facebook eftir sambandsslit? vísir/getty

Í útvarpsþættinum Brennslan á FM957 í gærmorgun skapaðist nokkuð skemmtileg umræða um hvort fólk ætti að eyða myndum af fyrrverandi maka sínum á samfélagsmiðlum.

Sumir eiga það til að eyða öllum myndum af fyrrverandi maka þegar sambandinu er lokið. En aðrir halda áfram með lífið og leyfa fortíðinni að lifa.

Eflaust eru margir lesendur Vísis sem þekkja þessa stöðu, að standa frammi fyrir þeirri ákvörðun að halda myndum inni eða jafnvel eyða þeim, sérstaklega þegar önnur manneskja er komin í spilin.

Þáttastjórnendur ræddu ólík tilefni þess að fólk eyddi myndunum. Fólk gæti verið sárt, gæti viljað koma í veg fyrir söknuð, aðrir væru reiðir og svo enn aðrir komnir í ný sambönd og óeðlilegt að Instagram væri troðfullt af myndum af fyrrverandi.

Hlustendur hringdu inn og sögðu sína skoðun. Afbrýðissemi gæti spilað stóra rullu. Einn hlustandi lýsti því að hann hefði einfaldlega falið myndirnar á Instagram þegar þau kærastan hættu saman.

Byrjuðu aftur saman

„En viti menn, við byrjuðum aftur saman,“ sagði hlustandinn ánægður með ákvörðunina sína. Hann skildi þó að fólk eyddi myndunum því það geti verið erfitt að hafa þær fyrir augunum allan tímann.

Egill Plöder, einn þáttastjórnanda, segist horfa á þetta þannig að Instagram sýni bara lífið. Hann hafi verið með eina kærustu og annarri. Hann hafi ekki eytt neinum myndum af fyrrverandi kærustum.

Hér að neðan má taka þátt í könnun þar sem spurt er hvort þú myndir eyða myndum af fyrrverandi maka á samfélagsmiðlum, færi svo að sambandinu lyki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×