Enski boltinn

Chelsea kaupir markvörð sem á að berjast við þann dýrasta

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Édouard Mendy er orðinn leikmaður Chelsea.
Édouard Mendy er orðinn leikmaður Chelsea. getty/Danilo Di Giovanni

Chelsea hefur gengið frá kaupunum á senegalska markverðinum Édouard Mendy frá Rennes. Talið er að Chelsea hafi greitt 23 milljónir punda fyrir Mendy.

Hann er sjöundi leikmaðurinn sem Chelsea fær til sín í sumar. Mendy skrifaði undir fimm ára samning við Chelsea.

Mendy á að berjast við Kepa Arrizabalaga um stöðu aðalmarkvarðar hjá Chelsea. Kepa, sem er dýrasti markvörður allra tíma, hefur ekki átt sjö dagana sæla hjá Chelsea og gerði m.a. skelfileg mistök í 0-2 tapinu fyrir Liverpool á sunnudaginn.

Mendy kom til Rennes frá Reims í fyrra. Hann hélt níu sinnum hreinu með Rennes í frönsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.

Þrátt fyrir að vera 28 ára hefur Mendy aðeins verið aðalmarkvörður hjá liði í efstu deild í tvö tímabil. Hann var um tíma á mála hjá Marseille en lék aldrei fyrir aðallið félagsins.

Mendy, sem er fæddur í Frakklandi, hefur leikið átta leiki fyrir senegalska landsliðið.

Hinn þrautreyndi Willy Caballero varði mark Chelsea í 6-0 sigrinum á Barnsley í 3. umferð enska deildabikarsins í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×