Innlent

Gjör­bylting í með­ferð krabba­meina

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifa

Gjörbylting hefur orðið síðustu ár í meðferð krabbameinsveikra með nýjum líftæknilyfjum. Maður sem greindist með alvarlegasta stig krabbameins sem hafði dreift sér, læknaðist eftir slíka meðferð.

Í mars 2018 greindist Þorsteinn Fr. Sigurðsson með 4. stigs ólæknandi krabbamein. Hann lét vini sína og fjölskyldu vita af alvarleika málsins.

Þorsteinn Fr. Sigurðsson greindist með fjórða stigs ólæknandi krabbamein árið 2018 en nú í lok ágúst var hann læknaður af meininu.Stöð 2

Það var svo í lok ágúst sem hann sagði frá kraftaverki, hann væri læknaður af krabbameininu en um var að ræða sortuæxli sem hafði dreift sér í lungu, nýru og lifur.

Hann rakti sögu sína á Facebook en við greiningu hafi hann farið í mánaðarlega meðferð með nýju líftæknilyfi Nivolunab sem stóð í eitt ár. Hann fékk nokkra fylgikvilla eins og vöðvarýrnun. En líftæknilyfið virkaði og meinin minnkuðu og svo kom að segulómun sýndi að krabbameinið var horfið.

Gjörbylting í meðferð krabbameinsveikra

„En Þorsteinn er ekki einn um að upplifa kraftaverk. Síðustu ár hefur orðið gjörbylting í meðferð krabbameinsveikra einstaklinga með nýjum líftæknilyfjum,“ segir Agnes Smáradóttir, yfirlæknir krabbameina á lyflækningasviði Landspítalans.

Agnes segir að þetta eigi sérstaklega við þá sem eru með sortuæxliskrabbamein sem hefur dreift sér, lungnakrabbamein og nýrnakrabbamein.

„Það er algjör bylting með þessum lyfjum þessi lyf örvar ónæmiskerfið,“ segir Agnes.

Hún segir þó að fylgikvillar geti komið upp. Agnes segir að um 60% allra krabbameinssjúklinga læknist sem sé gríðarleg breyting á fáum árum.

„Við höfum séð miklar breytingar hjá þeim sem greinast með krabbamein á dreifðu stigi. Það eru miklu fleiri meðferðarmöguleikar þannig að við getum gefið miklu betri meðferð.“


Tengdar fréttir

And­lát 24 ára gamallar konu á borð land­læknis

Fjölskylda 24 ára gamallar konu sem lést úr leghálskrabbameini og hafði farið í skimun hjá Krabbameinsfélagi Íslands sem benti til að nánari skoðanir þyrfti að gera hefur vísað máli hennar til landlæknis.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×