Erlent

Fresta kjötkveðjuhátíðinni í Rio

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Milljónir ferðamanna sækja hátíðahöldin í Rio á hverju ári. Þessi mynd er tekin á karnivalinu á þessu ári sem haldin var í febrúar.
Milljónir ferðamanna sækja hátíðahöldin í Rio á hverju ári. Þessi mynd er tekin á karnivalinu á þessu ári sem haldin var í febrúar. Getty/Buda Mendes

Kjötkveðjuhátíðinni í Rio de Janeiro sem halda átti í febrúar á næsta ári hefur nú verið frestað í ljósi kórónuveirufaraldursins.

Samba-skólarnir, sem standa að hátíðinni höfðu áður gefið út yfirlýsingu þess efnis að illmögulegt væri að halda hátíðina, yrði bóluefni ekki komið í febrúar en nú hefur hún verið slegin af með öllu.

Milljónir ferðamanna sækja hátíðarhöldin í Rio á hverju ári og er þetta hápunktur ársins í lífi Brasilíumanna sjálfra.

Kórónuveiran hefur leikið Brasilíu grátt og hafa fjórar og hálf milljón manna smitast af veirunni og um 140 þúsund hafa látið lífið. Vonast er til að einhvers konar svipuð hátíð geti farið fram síðar á árinu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×