Körfubolti

Stjörnunni spáð Íslandsmeistaratitlinum í Domino´s deild karla

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Stjarnan hefur unnið bikarinn síðustu tímabil en er enn að bíða eftir Íslandsbikarnum. Hlynur Bæringsson og Ágúst Angantýsson eru hér með bikarinn í febrúar.
Stjarnan hefur unnið bikarinn síðustu tímabil en er enn að bíða eftir Íslandsbikarnum. Hlynur Bæringsson og Ágúst Angantýsson eru hér með bikarinn í febrúar. Vísir/Daníel Þór

Það stefnir í æsispennandi baráttu á milli Stjörnunnar og Tindastóls í Domino´s deild karla í körfubolta ef marka má niðurstöðu spánna sem voru kynntar í dag.

Körfuknattleikssamband Íslands hélt í dag kynningarfund fyrir Domino´s deild karla og þar var opinberuð árleg spá fyrirliða, þjálfara og formanna félaga í deildinni.

Stjörnunni var spáð Íslandsmeistaratitlinum en fékk þó aðeins þremur stigum meira en Tindastóll í spánni. Það stefnir því í spennandi keppni milli þeirra um deildarmeistaratitilinn.

Það sést líka á því að fjölmiðlar spá Tindastól Íslandsmeistaratitlinum og þar fengu Stólarnir aðeins einu stigi meira en Stjarnan.

Valsmenn hafa bætt miklu við sig í sumar og þeim er spáð þriðja sætinu á sama tíma og KR-ingum var aðeins spáð fimmta sætinu. Keflavík er spáð þriðja sætinu hjá fjölmiðlum en fjórða sætinu hjá félögunum.

Nýliðum Hattar og Þór frá Akureyri er spáð falli úr deildinni en Breiðablik og Hamar eiga að koma upp í deildina í þeirra stað.

Hér fyrir neðan má sjá niðurstöðu úr öllum þessum spám sem voru kynntar í dag.

Spá fyrirliða, þjálfara og formanna félaga í Domino´s deild karla:

  • 1. Stjarnan 375 stig
  • 2. Tindastóll 372 stig
  • 3. Valur 359 stig
  • 4. Keflavík 317 stig
  • 5. KR 264 stig
  • 6. Grindavík 244 stig
  • 7. Njarðvík 236 stig
  • 8. ÍR 197 stig
  • 9. Haukar 170 stig
  • 10. Þór Þorlákshöfn 118 stig
  • 11. Höttur 93 stig
  • 12. Þór Akureyri 63 stig
  • (Mest var hægt að fá 432 stig - Minnst var hægt að fá 36 stig)

Spá fjölmiðla í Domino´s deild karla:

  • 1. Tindastóll 112 stig
  • 2. Stjarnan 111 stig
  • 3. Keflavík 99 stig
  • 4. Valur 88 stig
  • 5. KR 69 stig
  • 6. Njarðvík 68 stig
  • 7. ÍR 64 stig
  • 8. Grindavík 62 stig
  • 9. Haukar 39 stig
  • 10. Þór Þorlákshöfn 30 stig
  • 11. Höttur 25 stig
  • 12. Þór Akureyri 13 stig
  • (Mest var hægt að fá 120 stig - Minnst var hægt að fá 10 stig)

Spá fyrirliða, þjálfara og formanna félaga í 1. deild karla:

  • 1. Breiðablik 267 stig
  • 2. Hamar 259 stig
  • 3. Álftanes 197 stig
  • 4. Vestri 185 stig
  • 5. Fjölnir 151 stig
  • 6. Sindri 150 stig
  • 7. Skallagrímur 129 stig
  • 8. Selfoss 107 stig
  • 9. Hrunamenn 103 stig
  • 10. Snæfell 47 stig

Spá fjölmiðla í 1. deild karla:

  • 1. Breiðablik 72 stig
  • 2. Hamar 72 stig
  • 3. Álftanes 59 stig
  • 4. Skallagrímur 55 stig
  • 5. Fjölnir 54 stig
  • 6. Selfoss 36 stig
  • 7. Vestri 34 stig
  • 8. Sindri 25 stig
  • 9. Hrunamenn 22 stig
  • 10. Snæfell 14 stig



Fleiri fréttir

Sjá meira


×