Körfubolti

Svona var kynningarfundurinn fyrir Domino's deild karla

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
KR á titil að verja í Domino's deild karla. Samkvæmt spánni enda KR-ingar í 5. sæti deildarinnar.
KR á titil að verja í Domino's deild karla. Samkvæmt spánni enda KR-ingar í 5. sæti deildarinnar. vísir/daníel

Vísir var með beina útsendingu frá kynningarfundi KKÍ vegna Domino's deildar og 1. deildar karla í körfubolta.

Fundurinn var haldinn í Laugardalshöll og hófst klukkan 12:00. Útsendingu frá fundinum má sjá hér fyrir neðan.

Á fundinum var árleg spá formanna, þjálfara og fyrirliða liðanna í deildunum kynnt. Stjörnunni var spáð Íslandsmeistaratitli en Hetti og Þór Ak. falli. Íslandsmeisturum KR var spáð 5. sæti. Spána í heild sinni má sjá hér fyrir neðan. Keppni í Domino's deild karla hefst fimmtudaginn 1. október.

Spá fyrirliða, þjálfara og formanna félaga í Domino´s deild karla:

  • 1. Stjarnan 375 stig
  • 2. Tindastóll 372 stig
  • 3. Valur 359 stig
  • 4. Keflavík 317 stig
  • 5. KR 264 stig
  • 6. Grindavík 244 stig
  • 7. Njarðvík 236 stig
  • 8. ÍR 197 stig
  • 9. Haukar 170 stig
  • 10. Þór Þorlákshöfn 118 stig
  • 11. Höttur 93 stig
  • 12. Þór Akureyri 63 stig
  • (Mest var hægt að fá 432 stig - Minnst var hægt að fá 36 stig)

Spá fjölmiðla í Domino´s deild karla:

  • 1. Tindastóll 112 stig
  • 2. Stjarnan 111 stig
  • 3. Keflavík 99 stig
  • 4. Valur 88 stig
  • 5. KR 69 stig
  • 6. Njarðvík 68 stig
  • 7. ÍR 64 stig
  • 8. Grindavík 62 stig
  • 9. Haukar 39 stig
  • 10. Þór Þorlákshöfn 30 stig
  • 11. Höttur 25 stig
  • 12. Þór Akureyri 13 stig
  • (Mest var hægt að fá 120 stig - Minnst var hægt að fá 10 stig)

Spá fyrirliða, þjálfara og formanna félaga í 1. deild karla:

  • 1. Breiðablik 267 stig
  • 2. Hamar 259 stig
  • 3. Álftanes 197 stig
  • 4. Vestri 185 stig
  • 5. Fjölnir 151 stig
  • 6. Sindri 150 stig
  • 7. Skallagrímur 129 stig
  • 8. Selfoss 107 stig
  • 9. Hrunamenn 103 stig
  • 10. Snæfell 47 stig

Spá fjölmiðla í 1. deild karla:

  • 1. Breiðablik 72 stig
  • 2. Hamar 72 stig
  • 3. Álftanes 59 stig
  • 4. Skallagrímur 55 stig
  • 5. Fjölnir 54 stig
  • 6. Selfoss 36 stig
  • 7. Vestri 34 stig
  • 8. Sindri 25 stig
  • 9. Hrunamenn 22 stig
  • 10. Snæfell 14 stig



Fleiri fréttir

Sjá meira


×