Lífið

RAX Augnablik: „Allt í einu fór heimurinn á hvolf“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Ljósmyndarinn Ragnar Axelsson segir að myndin af Guðjóni við Dyrhólaey hafi breytt miklu. Eftir að myndin birtist fór RAX að fá beiðnir erlendis frá varðandi myndirnar hans. 
Ljósmyndarinn Ragnar Axelsson segir að myndin af Guðjóni við Dyrhólaey hafi breytt miklu. Eftir að myndin birtist fór RAX að fá beiðnir erlendis frá varðandi myndirnar hans.  Mynd/RAX

„Þetta er nú meiri fíflagangurinn. Nú fara allir Mýrdælingar að reyna að fljúga í gegnum gatið og drepa sig allir sem einn,“ sagði Guðjón Þorsteinsson bóndi við Ragnar Axelsson ljósmyndara einn dag í fjörunni við Dyrhólaey. Ástæðan var að RAX hafði fengið leyfi hjá Ragnari til að Arngrímur Jóhannsson og Árni Johnsen fengju að lenda flugvél á túninu hans í ævintýraflugi. 

RAX kynntist fyrst Guðjóni og bróður hans Óskari dag einn þegar óveður gekk yfir á Suðurlandi. Rafmagnsstaurar brotnuðu og bræðurnir þurftu að handmjólka í nokkra daga og nota bílljós til þess að sjá hvað þeir væru að gera. RAX og Guðjón áttu strax einstakt vinasamband þrátt fyrir aldursmuninn. 

RAX og Guðjón á góðri stund.Mynd úr einkasafni RAX

Myndin sem Ragnar tók af Guðjóni í fjörunni við Dyrhólaey með brimsúginn í bakgrunni, er ein af þekktustu myndum ljósmyndarans. En myndin sem um ræðir átti líka eftir að hafa áhrif á Guðjón.

„Þegar þessi mynd kom, þá allt í einu fór heimurinn á hvolf hjá mér,“

segir RAX meðal annars um þessa mynd. Í fimmta þætti af RAX Augnablik segir hann söguna á bak við myndina sem prýðir forsíðu bókarinnar Andlit norðursins, Guðjón við Dyrhólaey. Í þættinum fáum við að kynnast betur gamla manninum sem RAX myndaði við hafið og heyra hvernig samband þeirra var í raun og veru. 

Þáttinn má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan. RAX Augnablik eru örþættir og þátturinn Guðjón við Dyrhólaey er tæpar sex mínútur. 

Klippa: RAX Augnablik - Guðjón við Dyrhólaey

Tengdar fréttir

RAX Augnablik: „Allt var eins nema hann“

Ljósmyndarinn Ragnar Axelsson, RAX, heimsótti þorpið Elduvík í Færeyjum árið 1997 og náði þar einstökum myndum. Þar á meðal var mynd af nýfæddum litlum dreng sem birtist svo nokkrum árum seinna í bók hans Andlit norðursins.

RAX Augnablik: „Ísbjörninn er svo klókur og snöggur að gera árás“

Örþættirnir RAX Augnablik eru sýndir á Vísi og í Stöð 2 Maraþon alla sunnudaga. Í nýjasta þættinum fer ljósmyndarinn Ragnar Axelsson yfir myndirnar sem hann tók í þegar hann fylgdi eftir veiðimönnum í leit að fjórum ísbjörnum úti á hafís þegar jökulstormur skall á.

RAX AUGNABLIK: Undir gosmekkinum þar sem allt varð svart

Örþættirnir RAX Augnablik eru sýndir á Vísi og í Stöð 2 Maraþon alla sunnudaga. Í nýjasta þættinum fer ljósmyndarinn Ragnar Axelsson yfir myndirnar sem hann tók í eldgosinu í Grímsvötnum árið 2011. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×